Samgöngur
Greiðar samgöngur eru til og frá Hafnarfirði þar sem Hafnarfjörður er hluti af samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins
Megin markmið í mótun gatnakerfis er að mæta þörfum samfélagsins um greiðar samgönguleiðir og jafnframt að tryggja umferðaröryggin allra vegfaranda þ.e. akandi, gangandi, hjólandi og ríðandi.
Gönguleiðir skólabarna hafa verið skrásettar í flestum skólum bæjarins. Þær upplýsingar hafa lagt grunn að stígakerfi bæjarins sem og verið nýtt við gerð 30km hverfa í bænum.
Strætó bs annast almenningssamgöngur í Hafnarfirði. Endastöð allra stofnleiða eru á Hlemmi í Reykjavík. Þrjár leiðir kerfisins þjóna Hafnfirðingum þar af ein hringleið í bæjarfélaginu. Miðbær Hafnarfjarðar er miðstöð almenningssamgangna í Hafnarfirði. Það er eðli þjónustukerfa almenningssamgangna að því er breytt í takt við breytingar á byggð og ferðavenjum. Þannig mun leiðakerfið í framtíðinni verða útvíkkað til að þjóna nýjum hverfum í Hafnarfirði. Almenningsvagnar eiga almennt að njóta forgangs í umferð.
Heimasíða Strætó www.bus.is
