Menning

Menningar og mannlíf í Hafnarfirði er blómlegt og á sér merka sögu.  Menningarstofnanir Hafnarfjarðarbæjar eru; Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Hafnarfjarðar, Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Gallerý og vinnustofur listamanna eru víða og öflugur Tónlistarskóli.  Þá eru í Hafnarfirði fjöldi kóra og annarra menningarfélaga s.s. Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Leikfélag Hafnarfjarðar, Gaflaraleikhúsið, Sveinssafn auk þess fjölbreytta menningarstarfs sem unnið er í skólum bæjarins og víðar.

Menningarstofnanir bæjarins hafa að leiðarljósi að höfða til sem flestra. Viðburðir miða að því að efla mannlíf og menningu í bænum, skapa tækifæri fyrir listamenn og koma hafnfirskri menningu á framfæri. Menningarstarf er ávallt skipulagt með samstarf og virkni þátttakenda í huga og bæjarbúum tryggt aðgengi að þekkingu, upplýsingum, sögu og nýsköpun.