Byggðasafn Hafnarfjarðar
Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Hlutverk þess er að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar um menningarsögu svæðisins og kynna þær almenningi. Minjasvæði Byggðasafnsins er Hafnarfjörður og nágrenni hans. Byggðasafn Hafnarfjarðar er með sýningaaðstöðu í sex húsum og að jafnaði eru níu sýningar í gangi í einu.
Byggðarsafn bæklingurKynningarmyndband
Pakkhúsið, Vesturgata 6
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning. Á sýningunni „Þannig var...” er saga Hafnarfjarðar og nágrennis rakin frá landnámi til okkar daga með aðstoð sagnfræðilegra texta, ljósmynda, teikninga, kvikmynda og fjölda muna sem glæða söguna lífi. Þar er hægt að fræðast um þýska og enska tímabilið í sögu bæjarins, verslunarsöguna, útgerðarsöguna, íþróttasöguna, hernámið, kvikmyndahúsin og margt fleira.
Á efstu hæð Pakkhússins er að finna leikfangasýningu safnsins. Sýning þessi, sem hið margverðlaunaða enska sýningafyrirtæki Janvs Ltd hannaði, er sérstaklega ætluð börnum. Á Byggðasafni Hafnarfjarðar er varðveitt stórt safn leikfanga og er hluti þess á sýningunni. Mununum er skipt reglulega út og því er alltaf eitthvað nýtt að sjá á leikfangasýningu Byggðasafnsins.
Í forsal Pakkhússins eru settar upp nýjar þema- og farandsýningar á hverju vori og standa þær sumarlangt. Þeim er ætlað að varpa ljósi á ákveðin tímabil eða atburði í sögu bæjarins og nágrenni hans en þó eru einnig settar upp farandsýningar erlendis frá
Opnunartími
1. júní – 31. ágúst, alla daga kl. 11:00 – 17:00
1. september – 31. maí, laugardaga og sunnudaga kl. 11:00 – 17:00
Sívertsens-Húsið, Vesturgata 6
Sívertsens-húsið er elsta hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna Sívertsen. Hann var mikill athafnamaður í Hafnarfirði á árunum 1794-1830 og rak þá útgerð, verslun og skipasmíðastöð í bænum. Bjarni var einn af fyrstu Íslendingunum til að fá verslunarleyfi hér á landi eftir daga einokunarverslunarinnar og hefur fengið viðurnefnið „faðir Hafnarfjarðar”. Húsið hefur verið gert upp í upprunalega mynd og er þar sýnt hvernig yfirstéttarfjölskylda í Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á merkilega sögu Bjarna Sívertsens og fjölskyldu hans.
Opnunartími
1. júní – 31. ágúst, alla daga kl. 11:00 – 17:00
Bookless Bungalow, Vesturgata 32
Bungalowið var byggt sem íbúðarhús fyrir skosku bræðurna Harry og Douglas Bookless árið 1918 en þeir ráku umfangsmikla útgerð
frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Þeir voru áhrifamiklir og langstærstu atvinnurekendur í bænum um árabil.
Eftir daga Bookless Bros tók annað breskt fyrirtæki, Hellyer Bros Ltd, frá Hull við eignum fyrirtækisins og rak blómlega útgerð um tíma. Húsið var opnað eftir endurbætur árið 2008 og er þar að finna sýningu um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar auk þess sem þar má sjá stássstofu þeirra Booklessbræðra.
Opnunartími
1. júní – 31. ágúst, alla daga kl. 11:00 – 17:00
Beggubúð, Vesturgata 6
Í Beggubúð er verslunarminjasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Húsið, sem byggt var árið 1906, stóð áður við aðalverslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008.
Opnunartími
1. júní – 31. ágúst, alla daga kl. 11:00 – 17:00
Siggubær, Kirkjuvegur 10
Erlendur Marteinsson sjómaður byggði Siggubæ árið 1902. Dóttir hans, Sigríður Erlendsdóttir, var tíu ára gömul þegar hún flutti í húsið og bjó þar allt til ársins 1978, þegar hún fluttist á elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang. Bær hennar er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.
Opnnuartími
1. júní – 31. ágúst, um helgar kl. 11:00 – 17:00
Góðtemplarahúsið, Suðurgata 7
Góðtemplarahúsið, sem í daglegu tali er kallað Gúttó, var byggt árið 1886 og þótti stórt, rúmaði um 300 manns en þá bjuggu rúmlega 400 manns í Hafnarfirði. Góðtemplarahúsið var fyrsta eiginlega samkomuhús Hafnfirðinga og um langan tíma miðstöð allrar menningar í bænum. Þar fór fram félagsstarf Góðtemplarareglunnar, auk funda og skemmtana annarra félaga. Í húsinu var fyrsti fundur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar haldinn.
Opnunartími
1. júní – 31. ágúst, um helgar kl. 11:00 – 17:00
Strandstígurinn
Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaaðstöðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Þar eru settar upp ljósmyndasýningar er varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði.

