Bókasafn Hafnarfjarðar
Strandgata 1
Bókasafn Hafnarfjarðar er almenningsbókasafn sem þjónar fyrst og fremst íbúum, fyrirtækjum og stofnunum í Hafnarfirði.
Bókasafn Hafnarfjarðar er í samstarfi við bókasöfnin í Garðabæ, Kópavogi og á Álftanesi. Samstarfið er á þá leið að hafi lánþegi gilt skírteini í einu safnanna getur hann nýtt sér þjónustu þeirra allra. Ársgjald ákvarðast af gjaldskrá safnsins í því sveitarfélagi þar sem lánþegi á lögheimili. Útlánagjöld, sektir og önnur gjöld miðast við það safn sem notað er hverju sinni. Söfnin eru samtals 5, þar sem Bókasafn Kópavogs hefur útibú í Lindasafni.
vefur Bókasafns Hafnarfjarðar http://www.bokasafnhafnarfjardar.is
