Álfar og víkingar
Að margra dómi leynist ýmislegt í Hafnarfjarðarhrauni sem ekki er þó öllum gefið að sjá. Alla tíð hafa menn trúað því að huldufólk og dvergar ættu sér þar bólstaði í klettum og skútum. Þessar huliðsvættir hafa löngum lifað í sátt og samlyndi við mennska íbúa staðarins.
Mörg dæmi finnast um það á Íslandi að vegastæðum hafi verið breytt vegna óhappa sem rakin hafa verið til álfa eða huldufólks. Við Merkurgötu í Hafnarfirði þrengist akvegurinn t.d. mjög við álfaklett sem skagar út í götuna.
Margir hafa talið sig verða vara við hvítklæddu konuna með silfurbeltið sem sögð er búa í Hamrinum, höll álfanna. Eftirfarandi frásögn er byggð á reynslu konu sem bjó lengi í grennd við Hamarinn. Hana dreymdi að henni væri boðið að koma inn í Hamarinn. Leiddi hvítklædd kona hana um glæsileg híbýli hallarinnar. Þegar þær gengu um salarkynnin sá konan margt skringilega klætt fólk. Það var allt í marglitum klæðum og hneigði sig þegar það sá álfkonuna. Þessi draumur rennir stoðum undir þá kenningu að í Hamrinum búi álfar af konungakyni.
Sigurbjörg Karlsdóttir hefur rekið fyrirtækið Horft í hamarinn í fjölda ára en Sigurbjörg er manna fróðust um álfa, þjóðsögur og reynslusögur af samskiptum manna og álfa. Gönguferðir hennar eru víðfrægar og ekki ofsögum sagt að hún sé sérlegur álfasendiherra Hafnarfjarðar. Sjá nánar á www.alfar.is
Í Hellisgerði er nú miðstöð álfa og huldufólks þar sem fyrirtækið Álfagarðurinn hefur bækistöð Þar kynnir Ragnhildur Jónsdóttir sjáandi hinar fjölbreyttu verur garðsins fyrir gestum. Sjá nánar á alfar@alfagardurinn.is
Víkingurinn Hrafna Flóki kom til Hafnarfjarðar um 860 en hafði stutta viðdvöl. Samkvæmt Landnámabók var fyrsti landnámsmaður Hafnarfjarðar Ásbjörn Özurarson. Ásbjörn var bróðursonur Ingólfs Arnarsonar. Landnám Íslands er einn merkasti atburður víkingaaldar þótt landnámsmennirnir hafi nær aldrei þurft að berjast til að eignast hér bújarðir.
Um allnokkurt skeið hafa víkingar látið til sín taka í Hafnarfirði. Í bænum er víkingaveitingastaður og víkingahótel. Á Fjörukránni er boðið uppá líflegar víkingaveislur, víkingarán, söng og gleði og í meira en áratug hefur Fjörukráin haldið árlega víkingahátíð í júní sem sótt er af víkingum víðsvegar úr heiminum. Á víkingahátíð leiða saman hesta sína bardagamenn og bogaskyttur, glímumenn, útskurðarmenn, steinhöggvarar, járnsmiðir, sögumenn, seiðkonur, tónlistarmenn og galdramenn. Það er óhætt að fullyrða að á hátíðinni ríki sannkölluð miðaldastemning, gleði og glaumur. Sjá nánari upplýsingar um víkingahátíðina á http://www.fjorukrain.is
