Tónlistarskólar

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar starfar samkvæmt námskrá sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu. Náminu er skipt í grunnnám, miðnám og framhaldsnám.

Tónlistarskólinn

Sækja um

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er hægt er að læra á:

  • píanó
  • hljómborð
  • orgel
  • harmóniku
  • gítar
  • bassa
  • slagverk
  • öll helstu strengja-, tréblásturs- og málmblásturshljóðfæri

Í skólanum er einnig starfandi söngdeild.

Samhliða hljóðfæranámi læra nemendur tónfræði, tónheyrn, hljómfræði og tónlistarsögu. Áhersla er lögð á samspil og í skólanum starfar sinfóníuhljómsveit, strengjasveitir, tvær lúðrasveitir, stórsveit og margir minni samspilshópar.

Yngstu börnin

Í Tónlistarskólanum er forskóladeild fyrir börn á aldrinum 6–9 ára. Markmiðið er að búa nemendur undir hljóðfæranám með markvissri þjálfun í hryn-, nótnalestri og almennri tónfræði. Í kennslustundum er sungið, dansað og leikið á ýmis ásláttarhljóðfæri og kennt á blokkflautu.

Í skólanum er einnig kennt Suzuki-nám þar sem börn byrja 3–6 ára. Hver nemandi sækir 30 mínútna einkatíma einu sinni í viku og 60 mínútna hóptíma einu sinni í viku þar sem 5 nemendur spila saman.

Rytmísk deild

Tónkvísl er rytmískur deild innan Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem mikil áhersla er lögð á spuna og samspil. Auk þess að fá hljóðfæratíma sækja nemendur samspilstíma. Í Tónkvísl læra nemendur helst á rafgítar, rafbassa, hljómborð, djasspíanó, slagverk og einstök blásturshljóðfæri. 

Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum ef það nám er sérhæfðara en boðið er upp á í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Umsækjandi þarf að hafa staðist inntökuskilyrði í viðkomandi tónlistarskóla og geta framvísað staðfestingu þess.

Sótt er um niðurgreiðsluna á Mínum síðum.

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Gjaldskrá Verð
Forskóli 64.700 kr.
Tónkvísl 131.367 kr.
Suzuki fiðlunám 102.841 kr.
Grunn og miðnám
1/1 + ½ Hljóðfæranám (lært á 2 hljóðfæri) 187.595 kr.
1/1 Hljóðfæranám 131.367 kr.
½ Hljóðfæranám 82.498 kr.
Tónfræðigreinar grunn- og miðnám 18.051 kr.
Ungbarnakennsla (námskeið 8 skipti) 21.661 kr.
Framhaldsnám án undirleiks
1/1 hljófæranám 147.473 kr.
1/2 Hljóðfæranám 88.564 kr.
Tónfræðigreinar framhaldsnám 24.068 kr.
Framhaldsnám með undirleik
1/1 Hljóðfæranám 168.806 kr.
½ Hljóðfæranám 121.904 kr.
Söngnám Verð
1/1 Söngnám með heilum undirleik 206.314 kr.
½ Söngnám með heilum undirleik 119.937 kr.
1/1 Söngnám með hálfum undirleik 168.807 kr.
½ Söngnám með hálfum undirleik 101.218 kr.
1/1 Söngnám án undirleiks 131.367 kr
½ Söngnám án undirleiks 82.498 kr
Söngnámskeið til reynslu (3 mánuðir) 35.321 kr.
Hljóðfæraleiga 14.827 kr.
Systkinnaafsláttur (fyrir tvö systkini í skólanum) 50%
Systkinaafsláttur, vegna systkina samtímis í skólanum Afsláttur
Fyrir annað systkini, afsláttur 50%
Fyrir þriðja systkini og fleiri, afsláttur 75%