Fasteignagjöld

Hægt er að nálgast álagningarseðla fasteignagjalda á Mínum síðum og á island.is.

Gjalddagar fasteignagjalda í Hafnarfirði eru tíu og er fyrsti gjalddaginn 1. febrúar og síðan fyrsta hvers mánaðar til 1. nóvember. Í þeim tilvikum sem fasteignagjöld ársins eru kr. 25.000 eða lægri er öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga ársins þann 1. febrúar. Eindagi fasteignagjaldanna er 30 dögum eftir gjalddaga.

Fasteignagjöldin eru til innheimtu í heimabönkum og greiðslu- og álagningarseðlar fasteignagjalda eru ekki sendir út í pappírsformi.

Reiknivél fasteignagjalda

Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húss og lóðar. Reiknivélin miðar við að um sé að ræða húsnæði sem hefur að lágmarki verið skráð fokhelt – byggingarstig 4 eða hærra.

Þar af lóðarmat

Gerð húsnæðis




Reikna Endurreikna
Heildarkostnaður kr./ári.
Mánaðarleg greiðsla febrúar-nóvember kr./mán.

Sundurliðun

Fasteignaskattur kr.
Lóðarleiga kr.
Fráveitugjald kr.
Vatnsgjald kr.
Sorp- og urðunargjald kr.
Samtals kr./ári.

Fyrirvari:
Eingöngu er um áætlun að ræða miðað við þá forsendur sem slegnar eru inn.