|
Vatnsveita Hafnarfjarðar – yfirlit
Vatnsból Hafnarfjarðar er í Kaldárbotnum. Þaðan liggur aðfærsluæð til bæjarins meðfram Kaldárselvegi um 6 km að lengd, síðan eftir stofnæðum og dreifilögnum sem flestar liggja í götum bæjarins. Fáeinar dælustöðvar innanbæjar sjá þeim bæjarhlutum sem hæst liggja fyrir vatni. Fyrstu tildrög að vatnsveitu í bænum munu vera að Vatnsveitufélag Hafnarfjarðar var stofnað 1904. Í fyrstu sóttu bæjarbúar vatn í vatnskrana, sem settir voru upp víðs vegar um bæinn. Síðar var farið að leiða vatn í hús. Vatnsveita Hafnarfjarðar sér nú um vatnsöflun og dreifingu neysluvatns í Hafnarfirði. Vatn er leitt til bæjarins frá Kaldárbotnum. Núverandi aðveituæð er frá árinu 1950 og fullnægir hún enn vatnsþörf bæjarins. Sjálfrennsli vatns er í stærstum hluta bæjarins, þó er vatni dælt á Hvaleyrarholt og í efstu byggð í Hvömmunum og Setbergshverfi. Á tímabili skipulagsins er stefnt að því að leggja nýja aðveituæð ásamt því að byggja vatnstanka og dælustöðvar til þess að auka rekstraröryggi og hagkvæmni vatnsveitunnar. Á liðnum áratugum hafa verið boraðar fjölmargar rannsóknarholur í nágrenni Hafnarfjarðar. Fyrstu holurnar voru vegna jarðhitaleitar og voru allar grunnar, eða á bilinu 60-100 m. Hitastigull í nágrenni bæjarins reyndist vera á bilinu 5,7 til 7,2 gráður á 100 m. Merkilegasta holan sem hefur verið boruð er við Kaldársel og varð 987 m djúp. Sú hola var köld (2-5 gráður) niður á 750 m dýpi. Á síðastliðnum áratug lét Vatnsveita Hafnarfjarðar bora á sjötta tug rannsóknarhola til að kanna grunnvatn. Dýpstu holurnar eru tæplega 90 m djúpar. Holurnar eru dreifðar um svæðið frá Helgafelli að Straumsvík.
|
Helstu upplýsingar
Vatnsveita Hafnarfjarðar
Kt. 430100-2380
Gjótuhrauni 8
220 Hafnarfjörður
Skrifstofan er opin alla
virka daga frá kl. 8-16
Sími: 555-6330 Fax: 555-3431 Banki: 327-26-6330
Neyðarsími: 896-2621
Vatnsveitustjóri: Dagur Jónsson
Verkstjóri: Ragnar Jónsson
Skrifstofa: Ragnheiður Kristinsdóttir
|