Í skólastefnu Hafnarfjarðar segir eftirfarandi um tónlistarnám:

Tónlistarnám

Sem flestum nemendum gefist kostur á tónlistarnámi í Hafnarfirði.  Það verði gert með starfrækslu öflugs Tónlistarskóla á fræðslusviði sem einbeiti sér að kennslu nemenda sem sýnt hafa hæfileika til hljóðfæranáms.  Forskóli verði rekinn sem sjálfstæð eining á fræðslusviði í samstarfi við TH og grunnskólana.  Nemendum gefist kostur á fjölbreyttu tónlistarnámi í framhaldi af forskólanum.  Þaðan opnist leið í frekara tónlistarnám fyrir þá nemendur sem sýna hæfileika til þess.

Leiðir

  • Kappkosta að skólanámskrá TH taki mið af nýrri aðalnámskrá og greinanámskrám þar sem rík áhersla er lögð á að nemendur öðlist áhuga á tónlist og tónlistariðkun.
  • Búa nemendum fjölbreytt skilyrði til að þroska tónlistarhæfileika sína og sköpunargáfu, svo sem við að hlusta á tónlist við margs konar aðstæður og skapa eigin tónlist.
  • Bjóða upp á kennslu í söng og á öll helstu hljóðfæri.
  • Í náminu verði nemendur hvattir til að syngja og leika á hljóðfæri, skapa eigin tónlist, taka þátt í samleik og samsöng, hlusta á tónlist og koma fram á tónleikum.
  • Grunnskólanemendum gefist kostur á að stunda hluta af tónlistarnámi sínu í samfelldum skóladegi í eigin skóla þar sem húsnæði skólans leyfir.
  • Forskólakennsla yngstu barna fari fram á skólatíma grunnskólans.
  • Gert verði ráð fyrir kennslurými sérstaklega ætluð til tónlistarkennslu við hönnun nýrra skólamannvirkja.
  • Gefa fleiri nemendum kost á hljóðfæranámi og kórstarfi með m.a. hópkennslu, stofnun skólahljómsveita o.fl. þ.h.
  • Leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunar með þátttöku nemenda í samleik.
  • Prófdæming og námsmat verði samræmt milli deilda.




Hafnarfjarðarbær Tónlistarskóli Hafnarfjarðar | tonhaf@hafnarfjordur.is 
Strandgötu 51 | 220 Hafnarfirði | Pósthólf 23 | Sími 555 2704 | Bréfsími 565 4909