Almenn afgreiðsla
Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar er staðsett á Strandgötu 6, í Ráðhúsi bæjarins. Í þjónustuverinu er öll almenn afgreiðsla fyrir deildir og stofnanir bæjarins. Í þjónustuverinu er tekið á móti umsóknum og hægt að fá teikningar af fasteignum. Starfsmenn þjónustuvers gefa meðal annars upplýsingar um gjaldskrár bæjarins, húsaleigubætur, niðurgreiðslu vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna, íbúagátt bæjarins, upplýsingar til ferðamanna og leiðbeinir hvernig hægt er að nálgast upplýsingar á vef bæjarins. Þjónustuverið sér einnig um íbúaskráningar og viðtalsbókanir hjá skipulags- og byggingarsviði.
Þjónustuverið er opið alla virka daga frá 8 -16.
Einnig má beina erindum til þjónustuvers á
hafnarfjordur@hafnarfjordur.is og með netspjalli á www.hafnarfjordur.is .
Deildarstjóri Þjónustuvers er:
Anna Bára Gunnarsdóttir
Þjónustufulltrúar eru:
Ármann Eiríksson
Katrín Knudsen
Margrét Mollý Borgarsdóttir
Ruth Baldvinsdóttir
Sigríður Þórðardóttir