Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar

Niðurfelling fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2010
af eigin íbúð elli- og örorkulífeyrisþega (>75% örorka)
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti niðurfellingu gjalda 2010 á fundi sínum 22. des. 2009,
samkvæmt eftirfarandi viðmiðum.
Einstaklingur, brúttótekjur 2009 Niðurfellling
            0 til 2.450.000 kr.

100%

2.450.001 til 2.800.000 kr.

75%

2.800.001 til 3.100.000 kr.

50%

3.100.001 til 3.350.000 kr.

25%

Hjón, brúttótekjur 2009
            0 til 3.450.000 kr.

100%

3.450.001 til 3.850.000 kr.

75%

3.850.001 til 4.200.000 kr.

50%

4.200.001 til 4.500.000 kr.

25%

Tekjuviðmiðun er árstekjur 2009 samkvæmt skattframtali 2010; samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 á skattframtali) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10 á skattframtali
Um framkvæmd niðurfellingar fasteignaskatts og holræsagjalds gilda nánari reglur sem bæjarstjórn 
setur hverju sinni.

 

 
Reglur um lækkun eða niðurfellingu fasteignagjalda tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
og vegna andláts maka
 
  1. Ellilífeyrisþegi þarf að hafa orðið 67 ára, árið fyrir niðurfellingu eða lækkun fasteigna­skatts og holræsagjalds.
     
  2. Öryrkjar þurfa að vera 75% öryrkjar til að fá niðurfellingu eða lækkun á fasteigna­skatti og holræsagjaldi. Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi. 
     
  3. Vegna fráfalls maka er felldur niður fasteignaskattur og holræsagjald að 100% hluta, næsta ár eftir andlát maka óháð tekjum. Skilyrði fyrir niðurfellingu er framvísun dánarvottorðs. 
     
  4. Eingöngu er veittur afsláttur af gjöldum af íbúðum sem ellilífeyrisþegar, öryrkjar eða eftirlifandi maki eiga og búa í. Eingöngu er veittur afsláttur af gjöldum af einni íbúð í eigu aðila.
     
  5. Sé umsækjandi í óvígðri sambúð gilda sömu reglur og um hjón sé að ræða. 
     
  6. Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi. 
     
  7. Verði slit á hjónabandi eða sambúð þeirra einstaklinga sem getið er í 6. gr., þá eiga aðilar máls rétt á öðru hvoru tveggja, frá og með þeim tíma sem lögskilnaður er skráður eða sambúðarslit skráð:
     
    1. Að njóta óbreytts afsláttar út álagningarárið óski þeir þess.
    2. Að vera meðhöndlaðir sem einstaklingar frá og með þeim tíma óski þeir þess, enda geta þeir með fullnægjandi hætti sýnt aðgreindar sértekjur sínar á undan sbr. 8. gr. 
       
  8. Varðandi tekjuviðmiðanir er litið til tekna ársins 2009, þ.e samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 á skattframtali) og fjármagnstekjum (reitur 3.10 á skattframtali)  
Reglur þessar eru settar með heimild í lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, 5. gr., 4. mgr.
 
(Reglur samþykktar af bæjarstjórn Hafnarfjarðar 22. desember 2009, vegna ársins 2010)
 

Nánari upplýsingar eru veittar í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar s. 585 5500 og á www.hafnarfjordur.is