Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar

Sviðsstjóri er bæjarstjóri Lúðvík Geirsson.

Aðsetur: Ráðhús Hafnarfjarðar Strandgata 6, 2 hæð
Sími: 585 5500, bréfsími 585 5509.

Undir stjórnsýslu- og fjármálasvið falla málaflokkarnir fjármál, starfsmannamál, þjónustu- og þróunarmál og lögfræðiþjónusta.

Starfandi bæjarlögmaður er Anna Jörgensdóttir Bæjarlögmaður annast lögfræðileg málefni fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar. Sjá nánar hér.

Fjármálastjóri  er Gerður Guðjónsdóttir. Undir fjármálastjóra fellur reikningshald, kostnaðareftirlit og áætlunargerð og fjárreiðudeildHér er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um fjármál Hafnarfjarðarbæjar.


Starfsmannastjóri er Anna Jörgensdóttir. Undir hann heyrir framkvæmd og túlkun kjarasamninga og vinnulöggjafar,starfsþróun og símenntun. Lýðræðis- og jafnréttismál. Starfsmannastjóri er yfirmaður launadeildar.

Hjá Hafnarfjarðarbæ er starfað eftir samþykktri mannauðstefnu. Hægt er að skoða stefnuna hér.
 
Þjónustu- og þróunarstjóri er Anna Sigurborg Ólafsdóttir. Hann vinnur að þjónustu- þróunar- og markaðsmálum hjá Hafnarfjarðarbæ og er ráðgjafi bæjarstjóra og starfsmanna í framgreindum málaflokkum. Þjónustu - og þróunarstjóri er yfirmaður Þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar.

Stjórnsýslu- og fjármálasvið fellur undir bæjarráð, formaður bæjarráðs er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

Bæjarstjóri undirbýr bæjaráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar.

Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, starfsmannamálum, málum sem falla undir stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 50/1996, málefni sem falla undir stjórnir byggðasamlaga eða annarra fyrirtækja sem Hafnarfjarðarkaupstaður á aðild að. Bæjarráð undirbýr árlega fjárhagsáætlun, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi ráða og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarfélagsins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.
Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg. Í sumarleyfi bæjarstjórnar annast bæjarráð fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem berast kunna frá ráðum og nefndum.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er heimilt að ákveða að fela öðrum aðilum en bæjarráði afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. Afgreiðslum slíkra mála má þó ætíð skjóta til bæjarráðs eða bæjarstjórnar. Bæjarráð setur nánari reglur um notkun slíkra heimilda og skulu þær staðfestar í bæjarstjórn.

Nefndir sem heyra undir bæjarráð:
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd.
Miðbæjarnefnd.
Kjörstjórn við alþingis og sveitarstjórnarkosningar.
Hafnarstjórn