| HAFNARFJARÐARBÆR Í TÖLUM
Hafnarfjarðarbær í tölum liggur nú fyrir í þriðja sinn. Teknar eru saman margskonar tölegar upplýsingar umfang rekstrar og þjónustu bæjarins sem aðgengilegar eru og þær settar fram með skýrum og einföldum hætti.
Auk fastra þátta, um fjármál, íbúafjölda, atvinnuleysi og félagslega styrktarþjónustu (meðan núverandi þjóðfélagsaðstæður eru) er nú meðal annars gerð grein fyrir samanteknum magntölum úr eignaskráningu bæjarins og umfangi þjónustu Bókasafnsins, Tónlistarskólans og Byggðasafnsins.
Gæðastjóri bæjarins annast mótun og utanumhald verkefnisins í samstarfi við upplýsinga- og kynningarfulltrúa og þá fjölmörgu stjórnendur og starfsmenn sem leggja til hinar ýmsu upplýsingar. Samantektin er fyrst lögð fram á fundi bæjarráðs og síðan birt á vefsvæðum bæjarins, innri og ytri vef, þannig að jafnt stjórnmálamenn, bæjarbúar, starfsmenn og aðrir hafi aðgang að upplýsingunum.
Samantekt nr. 3 var lögð fram á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 29. apríl 2010.
|
||
|
Hér að neðan birtast samantektirnar, eftir útgáfudögum
|