Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar

Umhverfi og framkvæmdir
Norðurhellu 2.

Sviðsstjóri er Sigurður Páll Harðarson. 

Umhverfis og framkvæmdasvið heyrir undir umhverfis og framkvæmdaráð, formaður ráðsins er Margrét Gauja Magnúsdóttir. 

Um framkvæmdaráð
Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm fulltrúa í umhverfis og framkvæmdaráð til eins árs og jafnmarga til vara. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn fulltrúa í umhverfis og framkvæmdaráð að tilnefna fulltrúa til setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétti. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétti þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

Umhverfis og framkvæmdaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða að minnsta kosti tveir ráðsmenn óska þess.

Sviðsstjóri umhverfis og framkvæmdasviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann og forstöðumenn deilda. Hann sér um að framkvæmdaráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá að minnsta kosti einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað.

Formaður umhverfis og framkvæmdaráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins. Heimilt er að taka mál tiil meðferðar í framkvæmdaráði þótt það sé ekki tilgreint í dagskrá. Þó er  skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.

Umhverfis og framkvæmdaráð fer með mál sem falla undir umhverfis og framkvæmdasvið, svo sem mannvirkjagerð, eignarekstur, veitustarfsemi og umferðarmál, samkvæmt ákvæðum laga.

Umhverfis og framkvæmdaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Þá getur bæjarstjórn falið umhverfis og framkvæmdaráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.