LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

 

Skólastefna Hafnarfjarðar

Skólastefna Hafnarfjarðar er stefnumörku Hafnarfjarðarbæjar í skólamálum og til þess heyra málefni grunnskóla, leikskóla, tónlistarskóla, framhaldsfræðslu og PMT-foreldrafærni. Málaflokknum er þá stýrt af sviðsskrifstofu fræðslusviðs, Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Skólastefna Hafnarfjarðar kemur út í annað sinn árið 2009 eftir endurskoðunarferli sem stóð yfir í meira en ár. Skólastefna Hafnarfjarðar kom fyrst út árið 2005 eftir mikla undirbúningsvinnu og í henni var m.a. ákvæði um endurskoðun að þremur árum liðnum. Sú endurskoðun fór fram allt árið 2008 eftir ákveðnu vinnuferli sem samþykkt var í fræðsluráði Hafnarfjarðar í byrjun þess árs. Við endurskoðunina núna var lögð áhersla á að umbylta ekki fyrri skólastefnu heldur nýta hana sem grunn til að þróa skólastefnuna frekar. Þannig var lögð áhersla á að bæta við nýjum þáttum í samræmi við þróun mála frá árinu 2005 og taka út atriði sem sem þegar höfðu verið framkvæmd.

Skólastefna Hafnarfjarðar er eingöngu gefin út á rafrænu formi og er hægt að nálgast hana með því að smella á heiti hennar hér neðar.