Sala á skriftarefninu ÍTAREFNI Í SKRIFT
Skólaskrifstofan er útgefandi og annast dreifingu og sölu skriftarefnisins Ítarefni í skrift. Þetta eru nokkur vinnuhefti til þjálfunar í skrift fyrir grunnskólanemendur. Efnið er hugsað sem ítarefni í skriftarkennslu grunnskólanna. Höfundar eru Steinunn Sigurbergsdóttir og Þorgerður Jónsdóttir.
Pantanir á skriftarefninu berist á netfangið skolaskr@hafnarfjordur.is. Sérstakt pöntunareyðublað er fyrir efnið þar sem fram kemur verð á einstökum heftum. Hægt er að fylla það út í tölvu og senda sem viðhengi í tölvupósti.