LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

 

Opnunartími Skólaskrifstofu og þjónusta

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Strandgötu 31
220 Hafnarfjörður
Sími: 585 5800     Bréfasími: 585 5809
Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er opin kl. 8-16 alla virka daga allt árið um kring. Hún annast alla almenna stjórnsýslu fyrir Hafnarfjarðarbæ. Skrifstofustjóri er Ingibjörg Einarsdóttir (ingibje@hafnarfjordur.is). Upplýsingar um starfsfólk á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar er hægt að nálgast hér.

Erindi er ýmist hægt að bera upp á skrifstofunni eða senda í tölvupósti. Sum erindi er þó eingöngu hægt að senda rafrænt í gegnum íbúagátt Hafnarfjarðar.

Ýmis þjónusta við bæjarbúa, m.a.:

  • almenn afgreiðsla og móttaka erinda
  • móttaka og afgreiðsla umsókna um grunnskóla utan sveitarfélags og í einkaskóla
  • móttaka og afgreiðsla umsókna um tónlistarskóla utan Hafnarfjarðar
  • móttaka og afgreiðsla umsókna um leikskóladvöl og flutning milli skóla
  • móttaka og miðlun umsókna um flutning grunnskólanemenda milli skólahverfa í bænum
  • sérfræðiráðgjöf til foreldra vegna nemenda í leik- og grunnskólum

Ýmis þjónusta við skóla í Hafnarfirði og starfsfólk þeirra, m.a.:

  • sala skriftarefnis til skóla
  • sérfræðiráðgjöf til skóla vegna nemenda í leik- og grunnskólum
  • umsjá fræðslustarfsemi fyrir leik- og grunnskóla
  • umsjá launamála
  • útlán fræðibóka til leikskólakennara - fagbókasafn
  • útlán fræðslumyndbanda til skóla - myndbandasafn