AÐ SETTU MARKI er heiti á starfsskýrslu fræðslusviðs Hafnarfjarðar. Hún kom fyrst út árið 2008 og er stefnt að árlegri útgáfu þeirra eftir það. Starfsskýrsla er unnin í tengslum við verkefni árangursstjórnunar sem bærinn vinnur að. Í starfsskýrslu eru gefnar upplýsingar um skipulag og framkvæmd málaflokk fræðslumála í Hafnarfirði á hverjum tíma. Þar eru t.d. birt stefnukort fræðslusviðs, skipurit fræðslumála, listuð unnin verkefni liðins árs og kynnt ný verkefni komandi árs. Einnig er kynntar fjárhagsáætlanir hvers árs yfir fræðslumálaflokkinn hjá bænum. Þá eru einnig kynntar skólastofnanir á fræðslusviðinu og forstöðumenn þeirra.
Starfsáskýrsla fræðslusviðs, AÐ SETTU MARKI, er í þróun svo gera má ráð fyrir að efnistök breytist frá einu ári til annars. Áætlaður útgáfutími er upphaf hvers árs. Í janúar eða byrjun febrúar hvers árs ætti ný starfsskýrsla að koma út. Tenging í starfsskýrslurnar er hér neðar en þær eru eingöngu gefnar út á veftæku formi. Gerð starfsskýrslanna og útgáfu annast Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar og ábyrgðarmaður þeirra er Magnús Baldursson, fræðslustjóri.
Starfsskýrsla fræðslusviðs: