Framkvæmdaheimild skilmálar
-Leyfishafi setur upp umferðarmerkingar í samræmi við umferðarlög og reglugerðir (http://vegagerdin.is/framkvaemdir-og-vidhald/vinnustadamerkingar/ ), og eða skv. tilmælum Framkvæmdarsviðs.
Leyfishafi tryggir að vegfarendum, (akandi, gangandi eða hjólandi), stafi ekki hætta af framkvæmdunum. Tafir á umferð verði í lágmarki og framkvæmdum ljúki á tilsettum tíma.
-Sýnist Lögreglu eða Framkvæmdarsviði að um vanmerkingar sé að ræða eða að leyfishafi hefur ekki staðið að framkvæmdunum sem skyldi, getur hún krafist tafarlausra úrbóta eða látið framkvæma úrbætur á kostnað leyfishafa.
-Leyfishafi ber alla ábyrgð á tjóni sem má rekja til að ekki hafi verið rétt staðið að merkingum.
-Leyfishafi skal skila vinnusvæðinu eins og hann kom að því innan 15 virkra daga eftir að verkinu er lokið og skal allur frágangur vera í höndum fagaðila.
Vakin er sérstök athygli á því að efnisval og efnisþykkt í yfirborðsfrágangi skal vera sambærilegt og fyrir var.
Að þeim tíma loknum áskilur Hafnarfjarðarbær sér rétt til þess að koma svæðinu í fyrra horf á kostnað umsækjanda.
Ef að verkið er unnið á þeim tíma sem að ekki er hægt að fá malbik, steypu eða torf sökum veðurs, skal láta eftirlitsmann vita og klára svo yfirborðsfráganginn við fyrsta tækifæri.
-Leyfishafi getur óskað eftir því að Hafnarfjarðarbær taki að sér yfirborðsfrágang skv. gildandi gjaldskrá. Þá skal óska eftir því við eftirlitsmann.
-Hafnarfjarðarbær áskilur sér einnig rétt til þess að gera ráðstafanir á kostnað umsækjanda ef að hætta skapast af framkvæmdum og þarf að bregðast strax við. Þetta á t.d. við um skurð í götu þar sem ekki er búið malbika og hefur sigið í undirlaginu þannig að brún myndist.
Leyfishafi :
-Tilkynna skal eftirlitsmanni um verklok og óska eftir úttekt á gæðum og frágangi.