PMT RÁÐGJÖF má sækja í gegnum foreldranámskeið sem eru skipulögð á vegum PMT-FORELDRAFÆRNI.
PMT foreldranámskeið: eru fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika eða sem eru í áhættu vegna hegðunarerfiðleika. Um er að ræða átta vikna hópnámskeið þar sem 10-12 foreldrar fá ráðgjöf frá PMT ráðgjafa eða meðferðaraðila einu sinni í viku og vinna verkefni heima á milli tíma. Þjónustan við þennan hóp er umtalsvert minni en þegar um meðferð er að ræða en bandarískar rannsóknir sýna góðan árangur af slíkri fræðslu fyrir þennan hóp foreldra. Dæmi um þátttakendur á PMT foreldranámskeiðum eru foreldrar eldri barna í leikskóla og yngri barna í grunnskóla. Foreldranámskeið eru haldin reglulega.
Meginmarkmið námskeiðanna er að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.
FYRIRMÆLI–HVATNING–MÖRK–LAUSNALEIT-EFTIRLIT-TENGSL VIÐ SKÓLA-TILFINNINGASTJÓRN
PMT foreldranámskeið hjá PMT-FORELDRAFÆRNI á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar
Töluverður fjöldi fagaðila starfandi í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar, á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, á Félagsþjónustu Hafnarfjarðar og á Heilsugæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði hafa sótt grunnmenntun í PMT á vegum PMT-FORELDRAFÆRNI. Foreldrar í Hafnarfirði geta leitað ráða hjá þessum aðilum á ofangreindum stofnunum bæjarins. Þessir aðilar geta veitt ráðgjöf um hvernig best sé að mæta vægum hegðunarerfiðleikum og jafnframt vísað foreldrum í frekari ráðgjöf eða meðferð ef þörf er á.