02. júní 2009
Kl. 13–18 NORDIA 2009, Íþróttahúsinu Strandgötu
Nordia er norræn frímerkjasýning sem haldin er að frumkvæði landssambanda frímerkjasafnara á Norðurlöndum á hverju ári. Frímerkjasöfnin eru af ýmsum toga, sum hver hafa hlotið gullverðlaun á alþjóðlegum sýningum. Íþróttahús Hafnarfjarðar verður yfirfullt af sýningarrömmum og norrænum gestum dagana 29.–31. maí. Þarna verða sölu- og sýningarbásar frá öllum póstþjónustum Norðurlanda og frá Kína auk sölubása frímerkjasala. Sýndur verður afrakstur teiknisamkeppni sem haldin var í grunnskólum Hafnarfjarðar, verkefnið var að teikna frímerki og var myndefnið álfar og þjóðtrú.
Kl. 20.00 Fullar fagnaðar, tónleikar Sopranos í Hafnarborg
Píurnar í SOPRANOS leggja allt í sölurnar til að koma áheyrendum sínum í gott skap með fjörugri söngleikjatónlist, ódauðlegum gömlum dægurperlum og ófyrirgefanlega væmnum ástarsöngvum!!! Eitthvað sem fólk í fýlu má ekki missa af! Miðaverð 1.500 kr.
Kl. 20.00 Ódó á gjaldbuxum í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Ódó á gjaldbuxum er nýtt leikrit eftir og í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen. Kveikja einleiksins var andrúmsloftið í þjóðfélaginu undanfarin misseri og ekki hvað síst viðtöl í dagblöðum við svokallaða útrásarvíkinga. Þórey Sigþórsdóttir leikur Ódó, tónlistin er samin af Báru Grímsdóttur og lýsingu annast Garðar Borgþórsson. Miðverð 2.200 kr.
Laugardagur 30. maí
Kl. 10–18 NORDIA 2009 Íþróttahúsinu Strandgötu
Kíktu á verðmæt frímerkjasöfn og fallegar teikningar hafnfirskra skólabarna. Kl. 15 verða veitt verðlaun í samkeppni grunnskólabarna í Hafnarfirði um gerð frímerkis. Sjá föstudag.
Kl. 14.00 List og leikur – ratleikur
Hafnarborg býður til ratleiks og leiðsagnar fyrir alla fjölskylduna um útilistaverkin á Víðistaðatúni. Mæting við Skátaheimilið við Hjallabraut.
Kl. 15.00 Litir ættbogans – sýning í Menntasetrinu við Lækinn
Opnun samsýningar í Menntasetrinu við Lækinn, á 2. og 3. hæð, Skólabraut 1 (Gamla Lækjarskóla). Það er sagt að hæfileikar liggi í ættum. Tvíburasysturnar Guðrún og María Jónsdætur sverja sig í ætt við smiði og hagleiksfólk vítt og breitt í frændgarði sínum að fornu og nýju. Þær hafa lagt gjörva hönd á margt á lífsleiðinni, svo sem myndlist og smíðar, fatasaum og hannyrðir svo eitthvað sé nefnt. Þær systur sýna nú myndirnar sínar saman í fyrsta skipti. Systkinin Oddrún, Kristbergur og Sigurður taka þátt í sýningunni og einnig barnabörnin Kári Ólafsson, og Guðrún Svava, í samvinnu við ljósmyndarann Rafael Rakal. Á sýningunni verða olíu- og akrýlmálverk, litblýantsteikningar, ljósmyndir og blönduð tækni.
Kl. 17.00 Tónleikar Aladár og Guido í Hásölum
Guido Bäumer saxófónleikari og Aladár Rácz píanóleikari flytja tónlist fyrir saxófón og píanó eftir Debussy, Milhaud, Jolivet o.fl. í tónleikasalnum Hásölum á milli Hafnarfjarðarkirkju og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Miðaverð 1.500 kr. Verð fyrir eldri borgara, öryrkja og nema 1.000 kr.
Sunnudagur 31. maí
Kl. 10–16 NORDIA 2009, Íþróttahúsinu Strandgötu.
Kíktu á verðmæt frímerkjasöfn og fallegar teikningar hafnfirskra skólabarna. Sjá föstudag.
Kl. 15.00 Síðdegisdjass í Hafnarborg
Hafnarborg stendur fyrir síðdegisdjassi í samstarfi við veitingastaðinn Mann lifandi. Fram koma Guðmundur "Papa jazz" Steingrímsson, hinn eini sanni Raggi Bjarna, Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson. Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Kl. 20.00 Ódó á gjaldbuxum í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Ódó á gjaldbuxum er nýtt leikrit eftir og í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen. Kveikja einleiksins var andrúmsloftið í þjóðfélaginu undanfarin misseri og ekki hvað síst viðtöl í dagblöðum við svokallaða útrásarvíkinga. Þórey Sigþórsdóttir leikur Ódó, tónlistin er samin af Báru Grímsdóttur og lýsingu annast Garðar Borgþórsson. Miðverð 2.200 kr.
Mánudagur 1. júní – Hafnarfjarðarkaupstaður 101 árs
Kl. 15.00 Listamannsspjall í Hafnarborg
Jónína Guðnadóttir var útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2007 og sýnir hún verk í Hafnarborg unnin frá þeim tíma. Jónína verður með leiðsögn um sýninguna sína Vættir.
Kl. 18.00 Lífið við höfnina
Opnun á sögusýningunni Lífið við höfnina, í Pakkhúsi Byggðasafns Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8, í tilefni 100 ára afmælis Hafnarfjarðarhafnar.
Þriðjudagur 2. júní
Kl. 20.00 Útgáfutónleikar í Hafnarborg: „Enn er oft í koti kátt“
Kór Öldutúnsskóla, Kvennakór Öldutúns, Karlakórinn Þrestir og Kammerkór Hafnarfjarðar syngja. Út er kominn hljómdiskur með úrvali af lögum Friðriks Bjarnasonar í flutningi kóranna. Stjórnendur kóranna eru Brynhildur Auðbjargardóttir, Helgi Bragason og Jón Kristinn Cortez. Aðgangur ókeypis.
Kl. 21.00 Andrés Þór og kvintett í Gúttó
Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari og kvintett koma sama í hinu rómaða Góðtemplarahúsi við Suðurgötu 7. Þeir félagar leika ný og eldri lög úr smiðju Andrésar í bland við þekkta jazzslagara. Kvintettinn skipa: Birkir Freyr Matthíasson, Stefán Ómar Jakobsson, Andrés Þór Gunnlaugsson, Þorgrímur Jónsson og Scott McLemore. Aðgangseyrir er 1.000 kr. ( 500 kr. fyrir nema og eldri borgara).
Miðvikudagur 3. júní
Kl. 14.00 Brúðubíllinn fyrir utan Bókasafnið
Sýning Helgu Stephensen Afmælisdagur uglunnar.
Kl. 20.00 Kvöldstund með ást og kærleika – Elín Ósk í Hafnarborg
Flytjendur eru Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona og Jónas Þórir píanóleikari. Elín Ósk flytur aríur, söngleikjatónlist og dægurlög við undirleik Jónasar Þóris. Á tónleikunum verður á líflegan hátt fjallað um mismunandi stíla tónlistarinnar. Aðgangseyrir kr. 2.000.
Kl. 20.00 Frumsýning á kvikmyndinni Ósynd í Bæjarbíói
Ósynd er kvikmynd í fullri lengd eftir nemendur í Flensborgarskóla. Myndin fjallar um ungt fólk sem berst við að halda sér á floti, að þora að vera þau sjálf og taka sundtökin út í hinn stóra heim. Myndin er unnin af leikhópi Flensborgarskólans undir leikstjórn Eyrúnar Óskar Jónsdóttur. Upptaka og klipping var í höndum Ágústu Ýrar Sveinsdóttur. Framleiðandi er Kristján Hans Óskarsson í samstarfi við Jaðarleikhúsið og Gamla bókasafnið.
Í sérstökum hlutverkum birtast m.a. Geir Ólafs, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Finnbogi Þorkell Jónsson, Beggi og Pacas, Aldís Baldvinsdóttir og Ásta Sighvats Ólafsdóttir. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 15–18. Opið hús hjá Fjölgreinadeild Hafnarfjarðar í Menntasetrinu við Lækinn
Sýning á verkum nemenda og kaffihús þar sem nemendur selja gegn vægu verði það sem þeir hafa bakað. Nemendur sjá um að taka á móti gestum og leiða þá um sýninguna sem er á fyrstu hæð.
Fimmtudagur 4. júní
Kl. 14.00 Opið hús í Hraunseli, félagi eldri borgara í Hafnarfirði, að Flatahrauni 3
Þórður Marteinsson leikur á harmonikku, Gunnar Eyjólfsson kynnir Qi-Gong, nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leika fyrir gesti, stíginn verður línudans og Sverrir Guðmundsson verður með upplestur. Kaffiveitingar kr. 1.000
Kl. 15–18 Opið hús hjá Fjölgreinadeild Hafnarfjarðar í Menntasetrinu við Lækinn
Sýning á verkum nemenda og kaffihús þar sem nemendur selja gegn vægu verði það sem þeir hafa bakað. Nemendur sjá um að taka á móti gestum og leiða þá um sýninguna sem er á fyrstu hæð.
Kl. 17.00 og 18.00 Frumsýning á heimildarmyndinni Saga hafnarinnar í 100 ár, Bæjarbíói Í myndinni er rakin saga Hafnarfjarðarhafnar í heila öld eða frá því að reglugerð um Hafnarfjarðarhöfn tók gildi og fyrsta hafnarstjórn í Hafnarfirði kom saman. Höfundur er Halldór Árni Sveinsson, en hann hefur tekið upp mikið í Hafnarfirði og gert fjölda heimildamynda. Myndin er 55 mínútna löng. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 17.00 Af veggjum Hafnfirðinga, sýning í Gúttó
Af veggjum Hafnfirðinga er skemmtileg sýning á málverkum og öðrum listaverkum úr eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7. Sýningin er opin laugar- og sunnudaga í sumar.
Kl. 20.00 MONEY TRANSFORMANCE í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Money Transformance eða Peningaumbreytir er eftir alþjóðlega listahópinn „Secondhand Women“ sem starfar í Prag og samanstendur af konum frá Íslandi, Danmörku og Tékklandi.
Peningaumbreytir er blanda af hefðbundinni sjónrænni sýningu og kabarettsöngleik. Sýningin er túlkun á áhrifum peninga á heiminum í dag, hvernig hagfræðin túlkar öll svið lífsins og hvernig fjölskyldulíf er mælt í gæðastundum. www.hhh.is
Kl. 20 Trúbadorakeppni í Gamla bókasafninu. Hægt er að skrá sig á gamlabokasafnid@gmail.com eða í síma 565-5100
Kl. 20.30 Tónleikar Hjálma í Bæjarbíói
Hjálmar eru nýkomnir frá Jamaica með nýtt efni í farteskinu. Það er langt um liðið síðan Hjálmar settu upp tónleika í Hafnarfirði og er ánægjulegt að fá þá til að stíga á stokk í Bæjarbíó. Tónleikarnir munu innihalda blöndu af gömlu sígildu efni í bland við nýtt. Forsala á
www.midi.is. Miðaverð 2.000 kr.
Föstudagur 5. júní
Kl. 17.00 og 18.00 Saga hafnarinnar í 100 ár, kvikmynd sýnd í Bæjarbíói Myndin er 55 mínútna löng. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 20.30 Tónleikar KK bands í Bæjarbíói
KK band er af mörgum talið eitt af skemmtilegri böndum landsins. Þeir munu mæta í Bæjarbíó og leika af sinni alkunnu snilld. Að þessu sinni er bandið skipað þeim KK, Þorleifi Guðjónssyni og Jóni Ólafssyni. Mörg af þekktustu lögum KK í bland við óborganlega blúsa Forsala á
www.midi.is. Miðaverð 2.000 kr.
Laugardagur 6. júní
Kl. 10.00 Fuglaskoðun í Höfðaskógi og við Hvaleyrarvatn
Leiðsögumaður Einar Þorleifsson fuglafræðingur. Kynning verður á starfsemi Fuglaverndarfélags Íslands, hreiðurkassar til sölu ásamt ráðgjöf varðandi fuglafóðrun o.fl. í Selinu, bækistöðvum Skógræktarfélagsins þaðan sem lagt verður af stað. Gangan tekur um 2 klst.
Kl. 14.00 og 15.00 Saga hafnarinnar í 100 ár, kvikmynd sýnd í Bæjarbíói Myndin er 55 mínútna löng. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 14.00 og 16.00 Út í kött – ævintýraleikur í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Sýning Lýðveldisleikhússins Út í kött! er ævintýraleikur með dansi og söng, fyrir börn á aldrinum 4−12 ára en fullorðnir ættu líka að hafa gaman af þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur bregða á leik. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð. Miðaverð 1500 kr.
Kl. 14–18 Músík og matur
Kór Flensborgarskólans stendur fyrir skemmtun fyrir alla fjölskylduna í Hamarssal Flensborgarskólans. Þar munu kórfélagar og velunnarar þeirra bjóða upp á fjölbreytta tónlistar- og skemmtidagskrá ásamt hlaðborði gómsætra heimatilbúinna rétta. Þarna munu allir bæjarbúar og aðrir gestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Miðaverði verður stillt í hóf.
Kl. 17-19 Ball fyrir ungu kynslóðina
Ball fyrir krakka í Íþróttahúsinu Strandgötu. Nánari dagskrá síðar.
Kl. 20.00 Sýning á kvikmyndinni Ósynd í Bæjarbíói
Ósynd er kvikmynd í fullri lengd eftir nemendur í Flensborgarskóla. Myndin fjallar um ungt fólk sem berst við að halda sér á floti, að þora að vera þau sjálf og taka sundtökin út í hinn stóra heim. Myndin er unnin af leikhópi Flensborgarskólans undir leikstjórn Eyrúnar Óskar Jónsdóttur. Upptaka og klipping var í höndum Ágústu Ýrar Sveinsdóttur. Framleiðandi er Kristján Hans Óskarsson í samstarfi við Jaðarleikhúsið og Gamla bókasafnið.
Í sérstökum hlutverkum birtast m.a. Geir Ólafs, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Finnbogi Þorkell Jónsson, Beggi og Pacas, Aldís Baldvinsdóttir og Ásta Sighvats Ólafsdóttir. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 23.00 Lokadansleikur Bjartra daga í Íþróttahúsinu Strandgötu
Blásið er til stórdansleiks í Íþróttahúsinu Strandgötu á Björtum dögum í samvinnu við Prime. Hóað hefur verið í tvær af stærstu hljómsveitum landsins sem ætla að halda uppi stuðinu enda viðburður þegar Egó og Papar leiða hesta sína saman í fyrsta sinn. Með þessi tvö bönd á sviði þarf ekki að hafa áhyggjur af stemningu því stefnt er á að fylla húsið og gera allt þannig úr garði að enginn fari svikinn af ballinu. Við hvetjum fólk til að verða sér úti um miða tímanlega þar sem um takmarkað magn miða er um að ræða. Húsið verður opnað kl. 23 og dansleikurinn stendur til kl. 03.30. Miðasala á
www.midi.is og á Súfistanum í Hafnarfirði. Miðaverð 2.500 kr.
Sunnudagur 7. júní – Sjómannadagur og 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar
Hafnarfjarðarhöfn fagnar 100 ára afmæli á árinu, þótt segja megi með sanni að höfnin sé jafngömul landnámi Íslands. Á afmælisári verður sögunni gefinn gaumur með ljósmyndasýningunni Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár sem staðsett verður á göngustígnum við sjóinn, í Byggðasafninu og í Sjóminjasafni Reykjavíkur. Þá verður sýnd í Bæjarbíói heimildarmyndin Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár. Á Sjómannadaginn verða hátíðarhöld að venju og tekur Höfnin myndarlegan þátt í hátíðarhöldunum, m.a. með því að bjóða bæjarbúum upp á fiskisúpu við Fiskmarkaðinn við smábátahöfnina (Flensborgarhöfn). Margt fleira verður til gamans gert og er það von hafnarstjórnar að sem flestir mæti á svæðið og njóti dagsins.
Sjómanndagurinn hefst með því að fánar eru dregnir að húni. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna klukkan tíu og blómsveigur er lagður að minnisvarða um horfna sjómenn við Víðistaðakirkju korter í ellefu.
Kl. 11.00 Sjómannamessa og heiðrun sjómanna í Fríkirkjunni.
Kl. 11.30 Söguganga eftir strandstígnum
Gengið verður frá Langeyrarmölum suður að Flensborgarhöfn. Leiðsögn Björns Péturssonar um ljósmyndasýninguna sem sett verður upp í tengslum við 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Kl. 13–16 Líf og fjör við smábátahöfnina (Flensborgarhöfn við Óseyrarbryggju)
- Fiskisúpa í boði hafnarstjórnar hjá Fiskmarkaðnum
- Skemmtisigling – leggur af stað á hálftíma fresti
- Sirkusskólinn kennir kúnstir og leyfir öllum að spreyta sig
- Björgunarsveit Hafnarfjarðar sviðsetur björgunaraðgerð og sýnir búnað
- Andlitsmálun
- Listflug
- Kappróður
- Koddaslagur
- Kararóður
- Furðufiskasýning
- Ljúfir harmonikkutónar
- Leiktæki á svæðinu
- Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyti, Strandgötu 88
Tilboð í tilefni dagsins
Fjörukráin býður uppá steinbít í tilefni af deginum. Þriggja rétta matseðill á 4.200 kr. og tveggja rétta á 3.200 kr.
Kaffi Hafnarfjörður býður uppá girnilega sjávarréttasúpu ásamt brauði og kaffibolla á aðeins 690 kr.
Kænan býður uppá sitt margrómaða kaffihlaðborð frá 13-17.
Kl. 13–16 Opin vinnustofa hjá Maríu Ólafsdóttur að Fornubúðum 12 Listakonurnar í Gallerí Thors koma saman og vinna hver með sínum hætti í anda sjómannadagsins.
Kl. 14.00 Út í kött – ævintýraleikur í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Út í kött! er ævintýraleikur með dansi og söng, fyrir börn á aldrinum 4−12 ára en fullorðnir ættu líka að hafa gaman af þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur bregða á leik. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð. Miðaverð 1500 kr.
Kl. 14.30 og 15.30 Tónleikar hjá Málaranum við höfnina – 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar
Söngvararnir Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir flytja ásamt Reyni Jónassyni„Blítt og létt“, söngdagskrá tileinkaða sjómannadeginum og sýningu listakonunnar Soffíu Sæmundsdóttur Blikandi haf. Dagskráin verður flutt tvisvar sinnum, kl. 14.30 og 15.30 og eru allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Kaffi og kleinur í boði hússins. Sýningin og söngdagskráin verða í galleríi Soffíu, Málaranum við höfnina, að Fornubúðum 8.
Kl. 18.00 Tónleikar í Gamla bókasafninu
Fram koma hljómsveitirnar Ten Steps Away, Endless Dark, We Made God, Thingtak Foreign Monkeys, Vicky, Mammút og Cliff Clavin. Aðgangur er ókeypis.
Kl. 20.30 Tónleikar Íslenska saxófónkvartettsins í Hafnarfjarðarkirkju
Á tónleikunum leikur Íslenski saxófónkvartettinn barrokk- og endurreisnartónlist, m.a. verk eftir J.S. Bach, D. Scarlatti og G. Gabrieli. Aðgangur er ókeypis.
Leikskólalist. Leikskólabörn skreyta fyrirtæki, verslanir og stofnanir í Hafnarfirði með list sinni. Þema: Höfnin.
Ljóð í bænum. Ljóðabækur 6. bekkinga liggja frammi á biðstofum, sundlaugum og á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Sumarlestur fyrir krakka hefst 1. júní á Bókasafninu og stendur til 15. ágúst.
Sýningar víðs vegar um Hafnarfjörð á Björtum dögum
Vættir og Madame Lemonique & Madame Lemonborough
Jónína Guðnadóttir og Guðný Guðmundsdóttir sýna í Hafnarborg.
Blikandi haf
Í sýningarsal Málarans við höfnina að Fornubúðum 8 er sýning Soffíu Sæmundsdóttur.
Kvenlegt innsæi
Í versluninni Fríðu gullsmið að Strandgötu 43 sýnir Aðalheiður Ó. Skarphéðinsdóttir.
Bjartar meyjar
Listakonurnar í Gallerí Thors, við Thorsplan nefna sýningu sína BJARTAR MEYJAR.
Litir ættbogans
Samsýningin Litir ættbogans er í Menntasetrinu við Lækinn, á 2. og 3. hæð, Skólabraut 1 (Gamla Lækjarskóla).
Lífið við höfnina
Í Pakkhúsi Byggðasafns Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8, er sögusýningin Lífið við höfina í tilefni 100 ára afmælis Hafnarfjarðarhafnar.
Hafnarfjörður í hundrað ár
Ljósmyndasýning er sýnir lífið og störfin við höfnina í gegnum árin er staðsett á göngustígnum við sjóinn, í Byggðasafninu og í Sjóminjasafninu í Reykjavík.
Af veggjum Hafnfirðinga
Af veggjum Hafnfirðinga er í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7. Sýningin er opin laugar- og sunnudaga í sumar.
Tilboð í tilefni að Björtum dögum
Maður Lifandi í Hafnarborg
20% afsláttur af kaffi og kökum til þess taka með eða borða á staðnum.
Gamla vínhúsið Vesturgötu 4
Allar pizzur af matseðli á 1.200 kr. og safarík nautasteik með frönskum og bernais-sósu á 1.500 kr.
Tilveran Linnetstíg 1
Kvöldverðartilboð á steinbít á 1990 kr.
Fjörukráin Strandgötu 55
Þriggja rétta matseðil að hætti matreiðslumeistarans á 4.200 kr. og tveggja rétta matseðil að hætti matreiðslumeistarans á 3.200 kr.
Trjáræktarstöðin Þöll
Ókeypis ráðgjöf um trjá- og skógrækt á Björtum dögum.