Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
08. janúar 2009
| Stjórnsýsla


Fjárhagsáætlun 2009 samþykkt

Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 2009 var tekin til seinni umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 7. janúar. 

Yfirskrift fjárhagsáætlunarinnar sem lögð var fram sameiginlega af bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er:  Stöndum vörð um velferð og þjónustu. 

Þrátt fyrir fyrirséðan umtalsverðan samdrátt í tekjum bæjarsjóðs samhliða auknum útgjöldum vegna almennra launabreytinga, verður lögð megináhersla á að ná fram hagræðingu og sparnaði í rekstri, stjórnsýslu og framkvæmdum án þess að skerða grunnþjónustu og velferðarmál.  Almenn þjónustugjöld munu verða óbreytt og vatnsskattur verður lækkaður um 13% eða niður í 0,1%.  Til að mæta lækkun á fasteignamati fjölbýlishúsnæðis um 5% verður heimild til hækkunar útsvars nýtt og þær tekjur að hluta settar í sérstakan velferðarsjóð.


Helstu niðurstöðutölur eru eftirfarandi

  • Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A hluta verði jákvæð um nær 87 m.kr. á árinu 2009 en hún verður jákvæð um rúma 2.341 m.kr. samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2008, meðal annars vegna 6.030 m.kr. söluhagnaðar af hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja hf. 
  • Rekstrarniðurstaða A og B hluta verður jákvæð um 236 m.kr. á árinu 2009  en verður jákvæð samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2008 um liðlega 553 m.kr.
  • Veltufé frá rekstri í A hluta á árinu 2009 er áætlað 860 m.kr. og samantekið fyrir A og B hluta nær 1.617 m.kr.
  • Dregið verður úr öllum framkvæmdum og fjárfestingum á árinu 2009 en fjárfestingaráætlun verður endurskoðuð þegar línur skýrast varðandi fjár­mögnun framkvæmda á árinu 2009.

Lykilforsendur

 

Skatttekjur eru áætlaðar 10.280 m.kr. saman­borið við 10.739 m.kr. í endurskoðaðri áætlun 2008. Lækkun á milli ára er rúmlega 4%.

Til að mæta nýframkomnum upplýsingum um lækkun á fasteignamati fjölbýlis um 5% og annarri óvissu um lokaniðurstöðu fasteignamats verður nýtt heimild til hámarksálagningar útsvars í 13.28% í samræmi við tillögur ríkisstjórnarinnar. 

Áætlun útsvarstekna er byggð á þeim forsendum að  launabreytingar  nemi 2%, íbúafjölgun á árinu verði um 2%, atvinnuþátttaka minnki um 3% og atvinnuleysi verði um 6%. Áætlaðar útsvarstekjur lækka samkvæmt þessu um tæp 5% á milli ára.


Álagningarhlutfall fasteigna­skatts, holræsagjalds og lóðarleigu verður óbreytt á milli ára en vatnsgjaldið lækkar úr 0,115% í 0,1% eða um 13%.  Sorpeyðingargjald hækkar um 10% á milli ára eða úr 13.000 kr. í  14.300 kr. á íbúð.

Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að þjónustugjöld bæjarins hækki þrátt fyrir miklar verðlagshækkanir á árinu 2008.

Nýir kjarasamningar hækka launakostnað bæjarins á árinu 2009 um 300 m.kr.  Á móti þessari launhækkun er gert ráð fyrir 200 m.kr. hagræðingu í launa- og bifreiðakostnaði á árinu 2009. Þessari hagræðingu verður náð með; fækkun yfirvinnustunda, breytingu á vaktafyrirkomulagi, styttri opnunartíma stofnana, lækkun hæstu launa, lækkun launa í nefndum og ráðum og uppsögn og breyt­ingum samninga um bifreiðastyrki.

 

Meginmarkmið fjárhags- og starfsáætlunar

  • Mæta tekjufalli, sem er áætlað liðlega 1 milljarður króna, með hag­ræð­ingu og sparnaði.
  • Lækka álögur fasteignagjalda með lækkun vatnsskatts en mæta lækkun á fasteignamati fjölbýlishúsa með hámarksnýtingu útsvars.
  • Halda almennum þjónustugjöldum í leikskólum og grunnskólum óbreyttum.
  • Treysta grunnstoðir fjölskyldu-, skóla-, æskulýðs- og íþróttamála.
  • Tryggja grunnþjónustu og velferðarkerfið m.a. með sérstökum velferðarsjóði.
  • Lækka launakostnað í bæjarstjórn, ráðum og nefndum og hjá hærra laun­uðum starfs­mönnum
  • Verja störf almennra starfsmanna.
  • Tryggja jafna stöðu og möguleika allra bæjarbúa, ungra sem aldraðra, til þátttöku og aðgengis að þjónustu og félagslegu starfi.
  •  Draga úr nýframkvæmdum en ljúka þeim verkum sem eru á áætlun, eftir því sem fjármögnun verður tryggð.
  • Efla atvinnulífið með öllum tiltækum ráðum; m.a. með víðtæku samstarfi við aðila vinnu­markaðarins og stuðningi við nýsköpun, hugmynda- og þróunarvinnu.
  • Nýta þann mannauð sem er til staðar í bæjarfélaginu með virku samstarfi bæjarbúa, félaga, fyrirtækja og samtaka.
  • Leggja sem áður ríka áherslu á samráð og samstarf jafnt innan bæjarstjórnar sem og við starfsmenn bæjarins, íbúa og hagsmunaðila til að ná breiðri samstöðu um að­gerðir og megináherslur.
  • Tryggja almannaheill bæjarbúa og stuðning og þjónustu við þá sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda.
  • Styrkja og efla enn frekar árangursstjórnun, rekstrarstýringu og kostnaðareftirlit með mánaðarlegum uppgjörum.
  •  Endurskoða rekstrar- og fjárhagsáætlun eftir fyrstu þrjá mánuði ársins.

Almannaheill og atvinnuþróun

 

Hafnarfjarðarbær hefur haft frumkvæði að því að leiða saman og virkja samstarf fjölmargra aðila til að styrkja og vinna að uppbygg­ingu í velferðar- og atvinnumálum.  Frá því í október sl. hefur verið starfandi sérstakur aðgerðarhópur um almannaheill sem hefur mótað sérstaka aðgerðaráætlun til að bregðast við eftir því sem mál geta þróast á næstu misserum.   Þá er hafinn undirbúningur að stofnun atvinnu- og þróunarseturs til að bregðast við þrengingum á vinnumarkaði og stofnaður samstarfshópur með aðilum atvinnulífs, launþegafélaga, menntastofnana og Vinnumálastofnunar. Jafnframt hefur bæjarráð samþykkt að leita eftir viðræðum við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um samstarfssamning um stofnun Frumkvöðlaseturs í Hafnarfirði.

 

Greinargerð með fjárhagsáætlun 2009.