Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
01. október 2003
| Fréttir 2003


Rafrænir launaseðlar

Hafnarfjarðabær hefur tekið í gagnið rafræna launaseðla fyrir alla starfsmenn sína og býður nú starfsfólki sínu upp á þann möguleika að fá launaseðilinn sendan með rafrænum hætti í gegnum heimabanka. Útsending rafrænna launaseðla er í samræmi við ákvæði í upplýsingastefnu Hafnarfjarðarbæjar þar sem kveðið er á um að gögnum skuli miðlað rafrænt þegar það er tæknilega unnt.

Tilgangur rafræns launaseðils er að tryggja aðgengi starfsmanna að launaseðlum sínum á öruggum stað á Internetinu. Þannig eru launaseðlar alltaf tiltækir, til dæmis þegar uppgjör skatta og annað þess háttar er unnið. Með þessum hætti fær starfsmaðurinn launaseðilinn fyrr í hendurnar í stað þess að þurfa að bíða eftir honum í pósti.

Rafrænn launaseðill er pappírslaus og er sendur á rafrænan hátt frá Hafnarfjarðabæ inn á öruggt svæði sem er í umsjón Kaupþings Búnaðarbanka. Seðillinn birtist síðan í þeim netbanka þar sem launin eru lögð inn. Allir starfsmenn Hafnarfjarðabæjar sem eru með aðgang að netbanka geta nú haft þar aðgang að launaseðlum sínum. Launaseðlar birtast í öllum netbönkum þ.e.a.s. í Heimilisbanka Búnaðarbankans, Einkabanka Landsbankans, Heimabanka Sparisjóðanna eða Netbanka Íslandsbanka. Búnaðarbankinn gerir miklar öryggiskröfur til að tryggja hag viðskiptavina sinna og hefur frá upphafi notað til þess öruggasta dulmálslykil sem völ er á í bankaviðskiptum á Netinu.

Hafnarfjarðarbær er fyrst sveitarfélaga til að opna fyrir þann möguleika að starfsmenn geti valið að fá launaseðla sína senda með rafrænum hætti í gegnum heimabanka.

Á myndinni má sjá Guðrúnu Júlíusdóttur fulltrúa í þjónustuverinu skoða launaseðilinn sinn í heimabankanum.