Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
24. mars 2010
| Grunnskólamál09-10


Lokahátíð Sóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði fyrir þetta skólaár fór fram í Hafnarborg í gærkvöldi fyrir fullu húsi að viðstöddum forseta Íslands og menntamálaráðherra. 18 fulltrúar nemenda í 7. bekkjum í átta grunnskólum bæjarins og Álftanesskóla fluttu sitt mál í bundnu og óbundnu máli. Lesið var úr verkum Ármanns Kr. Einarssonar og ljóð Þorsteins frá Hamri auk upplesturs sérvalinna ljóða. Andrea Torfadóttir og Katrín H. Ólafsdóttir, tveir af sigurvegurum keppninnar í fyrra, kynntu skáld keppninnar í ár.

Fimm manna dómnefnd valdi síðan þrjá nemendur sem fengu sérstaka viðurkenningu fyrir flutning sinn. Það voru Hanna Lind Sigurjónsdóttir í Áslandsskóla (1. sæti), Ester Elísabet Gunnarsdóttir í Víðistaðaskóla (2. sæti) og Sverrir Bartolozzi í Álftanesskóla (3. sæti). Til hamingju. Myndin hér til hliðar sýnir sigurvegarana og fulltrúa skólanna þeirra á lokahátíðinni.

Auka þeirra fluttu Miglet Fet og Paulina Pawlenzka ljóð á sínu móðurmáli og tveir hópar nemenda úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fluttu tónlistaratriði.

Þá var veitt viðurkenning fyrir boðskort hátíðarinnar í ár og hlaut það Nadía Helga Loftsdóttir í 6. bekk í Setbergsskóla. Sömuleiðis voru veittar viðurkenningar fyrir þrjár bestu sögurnar í smásagnasamkeppni 8.-10. bekkinga í Hafnarfirði og hlutu þessar verðlaunin: 1. sæti: Birna Stefánsdóttir í Lækjarskóla (Klukkuna vantar tvær mínútur í tvö), 2. sæti: Anna Íris Pétursdóttir í Víðistaðaskóla (Glugginn) og 3. sæti: Elín Ósk Jóhannsdóttir í Víðistaðaskóla  (Eftirvænting).

Dómnefnd hátíðarinnar skipuðu þau Baldur Sigurðsson (formaður), Guðbjörg M. Sveinsdóttir, Heiðrún Kristjánsdóttir, Þorleifur Hauksson og Þórhallur Heimisson. Kynnir hátíðarinnar var Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, en hún hefur jafnfram yfirumsjón með keppninni í Hafnarfirði.

Myndasyrpan hér fyrir neðan er af keppendunum 18.