Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
10. febrúar 2010
| Menning


Styrkir til lista - og menningarstarfsemi

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir styrkumsóknum til lista- og menningarstarfsemi.
 
Í umsókn skal lýsa markmiði verkefnis vel og skila kostnaðaráætlun ásamt öðrum fylgigögnum sem máli skipta fyrir viðkomandi umsóknaraðila.Listamenn, félagasamtök eða menningarviðburðir skulu tengjast Hafnarfirði.
 
Umsóknareyðublöð má finna í íbúagáttinni/umsóknir. Athugið að til þess að sækja um þarf að skrá sig á íbúagátt bæjarins.

Hér er hægt að komast í Íbúagáttina/ umsóknareyðublað.

Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma 585-5500 eða í gegnum netspjall á www.hafnarfjordur.is.
 
Skilafrestur er til 1.mars 2010.

 
Reglur fyrir styrki til menningarstafsemi
  1. gr.
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar auglýsir einu sinnu á ári eftir styrkjum til menningarstarfsemi til eflingar hafnfirsku menningarlífi.   Auglýst skal fyrir 15. febrúar ár hvert. Miða skal við að úthlutun sé lokið fyrir 1. maí ár hvert.
  1. gr.
Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu Hafnarfjarðarbæjar og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar.
  1. gr.
Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Til dæmis með fastri búsetu einstaklinga, með því að viðburðurinn sem styrktur er fari fram í Hafnarfirði og/eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Ekki er styrkt til náms eða rekstrar.
 
4.      gr.
Umsóknum skal skilað með rafrænum hætti í gegnum vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is, Aðstoð við skráningu er hægt að fá á Skrifstofu menningar- og ferðamála og í Þjónustuveri bæjarins.
Auk almennra þátta skal eftirfarandi koma fram í umsókn:
·         Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
·         Styrkupphæð
·         Tíma- og verkáætlun
·         Önnur fjármögnun
·         Kostnaðaráætlun
 
5. gr.
Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf bæjarbúum og hafnfirskum listamönnum til góðs í samræmi við menningarstefnu Hafnarfjarðarbæjar. Tekið er mið af raunhæfni verkefna, kostnaðaráætlun auk tíma- og verkáætlun.  
Tilkynna skal öllum umsækjendum skriflega um niðurstöðu nefndar og hvenær úthlutun fer fram sé styrkur veittur.
Styrkhöfum ber að skila stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en ári eftir úthlutun.
 
6.      gr.
Framlög Hafnarfjarðarbæjar til menningarstarfsemi í formi húsaleigu eða aðstöðu skal metin samkvæmt reglum Fasteignafélags Hafnarfjarðarbæjar um innri leigu.
 
7.      gr.
Þeir aðilar sem hljóta styrki frá Hafnarfjarðarbæ skulu láta þess getið í kynningarefni sínu.
 
8. gr
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákveður við gerð fjárhagsáætlunar árleg framlög til menningarstyrkja. Úthlutun menningar- og ferðamálanefndar er háð samþykki Fjölskylduráðs.   
 
9.      gr.
Gagnsæi og vönduð vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi við meðferð umsókna og úthlutun styrkja. Þær umsóknir einar eru gildar sem berast innan umsóknarfrests í auglýsingu um styrki. Starfsmaður nefndar ber ábyrgð á meðferð og afgreiðslu styrkumsókna. 
 
10. gr.
Nefndin áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu styrkja og rifta samningum komi ekki til verkefna sem sótt er til eða um forsendubrest er að ræða.
 
11. gr.
Reglur þessar taka gildi 10. febrúar 2010 og falla þá úr gildi eldri reglur samþykktar af menningar- og ferðamálanefnd 5. október 2005.