Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
Byggðasafn Hafnarfjarðar ( Hafnarfjordur Museum )

Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Hlutverk þess er að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar um menningarsögu svæðisins og kynna þær almenningi. Minjasvæði Byggðasafnsins er Hafnarfjörður og nágrenni hans.  Byggðasafn Hafnarfjarðar er með sýningaaðstöðu í sex húsum og að jafnaði eru níu sýningar í gangi í einu.

PAKKHÚSIÐ:
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu,fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning. Á sýningunni „Þannig var...” er saga Hafnarfjarðar og nágrennis rakin frá landnámi til okkar daga með aðstoð
sagnfræðilegra texta, ljósmynda, teikninga, kvikmynda og fjölda muna sem glæða söguna lífi.

Hér er hægt að skoða myndir úr Pakkhúsinu.  

OPNUNARTÍMI;
Vetur: laugardaga og sunnudaga  kl. 11:00 – 17:00
og fimmtudaga  kl. 11:00 – 21:00 
Sumar: alla daga kl. 11:00 – 17:00
nema fimmtudaga  kl. 11:00 – 21:00


BUNGALOWIÐ:
Bungalowið var byggt sem íbúðarhús fyrir skosku bræðurna Harry og Douglas Bookless árið 1918 en þeir ráku umfangsmikla útgerð
frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Þeir voru áhrifamiklir og langstærstu atvinnurekendur í bænum um árabil.
Eftir daga Bookless Bros tók annað breskt fyrirtæki, Hellyer Bros Ltd, frá Hull við eignum fyrirtækisins og rak blómlega útgerð um tíma. Húsið var opnað eftir endurbætur árið 2008 og er þar að finna sýningu um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar auk þess sem þar má sjá stássstofu þeirra Booklessbræðra.

Hér er hægt að skoða myndir úr Bungalowinu  

OPNUNARTÍMI;
Vetur: Opið um helgar frá 11.00 - 17.00.
Sumar; Alla daga frá 11.00 - 17.00.

SÍVERTSENS- HÚSIÐ:
Sívertsens-húsið er elsta hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna Sívertsen.
Hann var mikill athafnamaður í Hafnarfirði á árunum 1794-1830 og rak þá útgerð, verslun og skipasmíðastöð í bænum.
Bjarni var einn af fyrstu Íslendingunum til að fá verslunarleyfi hér á landi eftir daga einokunarverslunarinnar og hefur
fengið viðurnefnið „faðir Hafnarfjarðar”. Húsið hefur verið gert upp í upprunalegri mynd og er þar sýnt hvernig yfirstéttarfjölskylda
í Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á merkilega sögu Bjarna Sívertsens og fjölskyldu hans.

Hér er hægt að skoða myndir úr Sívertsens- húsi 

OPNUNARTÍMI;

Vetur; Lokað  ( Opið fyrir hópa )
Sumar: alla daga kl. 11:00 – 17:00


BEGGUBÚÐ;
Í Beggubúð er verslunarminjasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Húsið,sem byggt var árið 1906, stóð áður við
aðalverslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008

Hér er hægt að skoða myndir úr Beggubúð

OPNUNARTÍMI;

Vetur; Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar: Alla daga frá 11.00 - 17.00. 

SIGGUBÆR;
Erlendur Marteinsson sjómaður byggði Siggubæ árið 1902. Dóttir hans,Sigríður Erlendsdóttir,
var tíu ára gömul þegar hún flutti í húsið og bjó þar allt til ársins 1978, þegar hún fluttist á elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang. Bær hennar er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar,
þar sem hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.

Hér er hægt að skoða myndir úr Siggubæ  

OPNUNARTÍMI;
Vetur; Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar: laugardaga og sunnudaga kl. 11:00 – 17:00


GÓÐTEMPLARAHÚSIÐ;
Góðtemplarahúsið, sem í daglegu tali er kallað Gúttó, var byggt árið 1886 og þótti stórt, rúmaði um 300 manns en þá bjuggu rúmlega 400 manns Í Hafnarfirði. Góðtemplarahúsið var fyrsta eiginlega samkomuhús Hafnfirðinga og um langan tíma miðstöð allrar menningar í bænum. Þar fór fram félagsstarf Góðtemplarareglunnar, auk funda og skemmtana annarra félaga. Í húsinu var fyrsti fundur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar haldinn. Í Góðtemplarahúsinu er að finna sýningar er snúa að íþrótta- og félagssögu Hafnarfjarðar.

Hér er hægt að skoða myndir úr Gúttó  

OPNUNARTÍMI;

Vetur: Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar; Opið um helgar frá 11.00 -17.00.

STRANDSTÍGURINN;

Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaaðstöðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Þar eru settar upp ljósmyndasýningar er varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði.

Hér er hægt að skoða myndir frá Strandstígnum  


ATH sýningarnar eru opnar fyrir hópa á öðrum tímum, tímapantanir eru í síma 585 5780

Skrifstofa safnsins er opin virka daga kl. 08:00 – 16:00.

Byggðasafn Hafnarfjarðar,
Vesturgata 8, 220 Hafnarfjörður,
S: 585 5780,
museum@hafnarfjordur.is