mánudaginn 21. janúar 2008 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu auk undirritaðra fræðsluráðsmanna:
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 0801252 - Samræmd próf í 4. og 7. bekk
Lagðar fram niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar haustið 2007.
2. 0709057 - Hjallastefnan, barnaskóli við Hjallabraut
Lagt fram bréf frá skólastjóra Barnaskóla Hjallastefnunnar við Hjallabraut.
Fræðsluráð samþykkir erindið með fyrirvara um að samþykki og tímabundið stöðuleyfi fáist fyrir umbeðnu viðbótarhúsnæði. Fræðsluráð fer þess á leit við framkvæmdasvið að unnið verði að afgreiðslu erindisins.
3. 0801256 - Forystuskólar
Þróunarfulltrúar leik- og grunnskóla fóru yfir stöðuna.
4. 0708153 - Reglur varðandi viðurkenningar fræðsluráðs
Lögð fram drög að reglum um viðurkenningar/hvatningaverðlaun fræðsluráðs.
5. 0801047 - Samtök sjálfstæðra skóla, kjör starfsmanna
Sbr. lið 6 í fundargerð fræðsluráðs frá 7. janúar sl.
Lagt fram kostnaðarmat sviðsstjóra ásamt tillögu um framkvæmd, sem felur í sér viðbótargreiðslur sem nema u.þ.b. 1,3 milljónum króna á mánuði vegna janúar t.o.m. nóvember í samræmi við áður samþykktar aðgerðir í starfsmannamálum.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar tillögur fræðslustjóra, fulltrúi VG situr hjá.
Gestur Svavarsson fulltrúi VG. lagði fram eftirfarandi bókun:
Erindi frá stjórn samtaka sjálfstæðra skóla felur í sér ósk um að Hafnarfjarðarbær hækki framlag til sjálfstætt starfandi skóla í sveitarfélaginu. Tillaga sú sem hér er lögð fram gerir ráð fyrir auknu fjárframlagi til leikskóla Hjallastefnunnar innan Hafnarfjarðar.
Starfshópur sem stofnaður var á seinasta ári til þess að bæta starfsumhverfi starfsfólks skóla Hafnarfjarðar skilaði tillögum inn til fræðsluráðs, sem samþykktar voru þar samhljóða af ráðinu. Tillögurnar lutu að kjörum faglærðs og ófaglærðs starfsfólks skóla Hafnarfjarðar og voru þannig úfærsla á kjarasamningum við starfsfólk skólanna. Þau fjárframlög sem vísað er til í bréfi frá sjálfstætt starfandi skólum snúa beint að kjörum opinberra starfsmanna í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær hefur ekki aðkomu að kjarasamningum sjálfstætt starfandi skóla í sveitarfélaginu og því erfitt að sjá með hvaða hætti ætti að koma til sambærilegrar hækkunar gagnvart sjálfstætt starfandi skólum. Auk þess er það svo að ef bærinn tæki þessi skref einnig gagnvart ytri samstarfsaðilum, þá yrðu markmið fyrrgreinds starfshóps sjálfkrafa ómarkvissari og óljósari.
6. 0712136 - Grunnskólar og leikskólar, frumvörp til umsagnar
Sbr. lið 4 í fundargerð fræðsluráðs frá 7. janúar sl.
Lögð fram drög að umsögn fræðsluráðs.
Fræðslusviði falið að koma umsögn ráðsins á framfæri.
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla viku af fundi kl. 9:40.
7. 0801255 -
Lagt fram bréf frá leikskólastjóra Smáralundi þar sem farið er fram á að flytja starfsdag frá 22. febrúar til 30. apríl vegna fyrirhugaðrar náms- og kynnisferðar til Tékklands.
Fræðsluráð samþykkir erindið enda liggi fyrir samþykki foreldrafélags leikskólans.
8. 0801259 - Íslenskukennsla fyrir starfsmenn, af erlendum uppruna, í leikskólum Hafnarfjarðar
Þróunarfulltrúi leikskóla kynnti námskeið sem haldið er á vegum Skólaskrifstofu fyrir erlenda starfsmenn í leikskólum.
Boðið er upp á 40 stunda námskeið og kennt í þremur hópum, grunnhópi og tveimur framhaldshópum.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Alþjóðahús, Skólaskrifstofan sér um allt skipulag en Alþjóðahús útvegar kennslugögn. Menntamálaráðuneytið styrkir námskeiðin og greiðir allt að 80% af kostnaði.
9. 0702039 - Hamravellir, leikskóli
Fræðsluráð felur fræðslusviði að auglýsa eftir leikskólastjóra að leikskólanum Hamravöllum sem tekinn verður í notkun næsta sumar.
Áheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi kl. 10:00
10. 0712114 - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar: Jazztónlistarskóli/Tónkvísl
Sbr. lið 12 í fundargerð fræðsluráðs frá 17. desember sl.
Lögð fram samantekt frá Stefáni Ómari Jakobssyni um Jazzskóla Hafnarfjarðar.
Formaður fræðsluráðs og sviðssjóri gerðu grein fyrir viðræðum við Stefán Ómar og stjórnendur Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Fræðsluráð samþykkir erindið og tekur jákvætt í hugmyndir um frekari þróun jazzdeildar innan Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, í samræmi við hugmyndir Stefáns Ómars Jakobssonar.
11. 0801257 - Myndlistarskólinn í Reykjavík
Lagt fram erindi frá Myndlistarskólanum í Reykjavík þar sem farið er fram á að gerður verði þjónustusamningur við skólann vegna nemenda úr Hafnarfirði.
Fræðsluráð felur fræðslustjóra að afla upplýsinga til úrvinnslu erindisins.
12. 0708151 - Staðan í ráðningarmálum í leik- og grunnskólum í byrjun skólaársins 2007-2008
Fyrirspurn frá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði:
Hvernig er staðan í ráðningarmálum starfsmanna í leik-og grunnskólum Hafnarfjarðar nú, í janúar 2008?
Óskað er eftir að svör liggi fyrir á næsta fundi ráðsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30
Hafrún Dóra Júlíusdóttir(sign)
Gestur Svavarsson(sign)