LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

Úthlutun leikskólavistar

Forsenda úthlutunar leikskólavistar er að barnið eigi lögheimili í Hafnarfirði. Samkvæmt lögum áskilur Hafnarfjarðarbær sér rétt  til að innrita börn í leikskóla eftir aldri (Lög um leikskóla nr. 90/2008 IX. kafli 26. gr.).

Aðalúthlutun leikskólavistar fer fram í mars/apríl vegna leikskólarýma sem losna vegna barna sem hætta í leikskóla vegna aldurs. Þá verða foreldrum barna sem eru á biðlista og eru fædd árið 2009 og eldri, auk forgangsbarna, send tilkynnig í rafpósti um úthlutun. Aðrar úthlutanir fara fram jöfnum höndum allt árið, það er þegar leikskólarými losna vegna flutninga eða annarra ástæðna. 

Í kjölfar úthlutunar fær foreldri/ forráðamaður bréf í tölvupósti um að barninu hafi verið úthluta leikskólarými. Í bréfinu er farið fram á að  foreldri/ forráðamaður staðfesti boðið um leikskólavistina hjá leikskólastjóra. Ef staðfesting hefur ekki borist innan 10 virkra daga er litið svo á að tilboðinu sé hafnað.

ÞEGAR BARN HEFUR FENGIÐ ÚTHLUTAÐA LEIKSKÓLAVIST ER INNRITUN ALFARIÐ I HÖNDUM LEIKSKÓLASTJÓRA þar sem aðstæður í hverju leikskóla ráða því hvenær hægt er að bjóða barni að hefja leikskólagöngu.

Þróunarfulltrúi leikskóla Hafnarfjarðar er ábyrgðarmaður úthlutunar leikskólavistar.