Umsókn um leikskólavist
Sækja má um leikskóla frá fæðingardegi barns, eða strax og kennitala þess hefur verið skráð.
Foreldrar/forráðamenn geta sótt um fleiri en einn leikskóla fyrir barn sitt. Börn geta dvalið í leikskólanum í fjóra til níu klukkustundir á dag en þá ávallt á sama tíma innan opnunartíma leikskólans.
Sótt er um leikskólavist á heimasíðu Hafnarfjarðar, hafnarfjordur.is í gegnum „Íbúagátt“. Til þess að fá aðgang að Íbúagáttinni þarf að sækja um notendanafn sem er sent samstundis í heimabanka umsækjanda. Einnig er hægt að fá notendanafn í Þjónustuveri Hafnarfjarðar. Þegar umsækjandi er kominn inn í Íbúagáttina eru þar ítarlegar leiðbeiningar sem vísa leiðina að umsóknareyðublaði um leikskólavist. Einnig er hægt að fylla út rafrænt umsóknareyðublað í tölvu í Þjónustuveri eða á Skólaskrifstofu.
Allir foreldrar hafa rétt til að sækja um leikskólavist í leikskólum Hafnafjarðar, en leikskólavist er eingöngu úthlutað til barna sem eiga lögheimili í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðabær hefur sett sér þá stefnu að börn fædd í febrúar 2009 og eldri og börn sem falla undir skilgreiningu um forgang fái úthlutaða leikskólavist í mars til maí fyrir skólaárið 2010-2011.
Foreldrar barna sem fædd eru 2008 og eldri og eiga barn á biðlista fá senda tilkynningu í rafpósti um úthlutun leikskólavistar í mars/apríl 2010
Önnur úthlutun fer fram jafnóðum og leikskólarými losna.