Eftir úthlutun leikskólavistar er innritun alfarið í höndum leikskólastjóra sem ber ábygð á henni.
Upphaf leikskólagöngu ræðst af aðstæðum í leikskóla. Algengast er að leikskólastjóri bjóði foreldri/ forráðamanni viðtalstíma við staðfestingu boðs um leikskóladvöl eða boðað er sérstaklega til hans. Í upphafsviðtali er meðal annars rætt um upphaf leikskólagöngu og aðra þætti er varða velferð barnsins í leikskólanum og heima.