LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

Forgangur í leikskóla

 

Samkvæmt lögum áskilur Hafnafjarðarbær  sér rétt til að forgangsraða börnum í leikskóla þegar taka þarf tillit til aðstæðna barna og foreldra og eða til aðstæðna í skólum sveitarfélagsins  (Lög um leikskóla nr. 90/2008, IX. kafli 26. gr.).

 

 

             Til að falla undir skilgreiningu um forgang þarf að skila vottorði frá viðurkenndum greiningaraðilum.

- Vegna fatlaðra barna (vottorð frá viðurkenndum greiningaraðila skal fylgja umsókn).

- Vegna barna með þroskafrávik (vottorð frá viðurkenndum greiningaraðila skal fylgja

  umsókn).

- Vegna barna sem búa við erfiðleika í félagsumhverfi – barnaverndarmál (vottorð frá félags-

  málayfirvöldum skal fylgja umsókn).

- Vegna alvarlegra veikinda eða fötlunar innan fjölskyldu barnsins (vottorð frá lækni eða

  öðrum opinberum aðilum skal fylgja umsókn).

 

Annar forgangur

- Börn  foreldra undir lögaldri (18 ára).

- Þríbura.

 -Börn  starfsfólks í leikskólum  Hafnarfjarðar (beiðni frá skólastjórum skal fylgja umsókn).

- Börn sem eiga systkini í sama leikskóla fram yfir önnur börn á sama aldri.