Ráðgjafar leikskóla á Skólaskrifstofu
Á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar starfa sérkennsluráðgjafi, þróunarfulltrúi og sálfræðingar sem veita leikskólasamfélaginu ráðgjöf og stuðning.
Helstu verkefni þeirra eru meðal annars að:
- veita ráðgjöf sem beinist að stjórnun, uppeldis- og menntastarfi leikskóla, einstökum deildum eða hópum, auk
samvinnu við starfsfólk og foreldra,
- meta uppeldis- og menntastarfið, miðla upplýsingum milli skóla og utan þeirra,
- stuðla að samstarfi við aðrar menntastofnanir og fagaðila utan sveitarfélagsins,
- styðja við og standa að skólaþróun leikskóla,
- standa fyrir símenntun,
- taka þátt í stefnumörkun varðandi leikskólamál sveitarfélagsins,
Sálfræðingur leikskóla gerir athuganir á leikskólabörnum og veitir starfsfólki og foreldrum ráðgjöf.
Ráðgjafar leikskóla á Skólaskrifstofu eru:
Anna Björnsdóttir, yfirsálfræðingur 80% starfshlutfall (annab@hafnarfjordur.is)
Anna María Frímannsdóttir, sálfræðingur 20% starfshlutfall (annamaria@hafnarfjordur.is)
Atli Bragason, sálfræðingur, 20% starfshlutfall (atliv@hafnarfjordur.is)
Björk Alfreðsdóttir, sérkennsluráðgjafi 100% starfshlutfall (bjorkalf@hafnarfjordur.is)
Sigurborg Kristjánsdóttir, þróunarfulltrúi 100% starfshlutfall (bogga@hafnarfjordur.is)