LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

Reglur og skilyrði um greiðslur til einkarekinna leikskóla sem ekki eru með þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að niðurgreiða í ellefu mánuði á ári leikskóladvöl barna í leikskólum sem ekki eru reknir af Hafnarfjarðarbæ. Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni, að fenginni tillögu fræðsluráðs.

 

Skilyrði fyrir greiðslu eru að: 
     -barnið eigi lögheimili í Hafnarfirði,
     -barnið sé á aldrinum tveggja til sex ára á því ári sem það fær leikskólavist. Þetta ákvæði á ekki við yngri

      börn sem hafa fengið leikskólavist þegar þessar reglur taka gildi,

     -ekki sé laust sambærilegt rými í leikskólum Hafnarfjarðar,
     -leikskóli hafi rekstrarleyfi og uppfylli lög um leikskóla, 
     -barnið sé slysatryggt í leikskólanum,
     -barnið dvelji 4-8 klst. daglega í leikskólanum.

 

Mánaðarlega niðurgreiðslu skal miða við dvalartíma barns með eftirfarandi hætti: Almenn niðurgreiðsla kr. 6.700,- á dvalartíma. 
          4 stunda dvöl kr. 26.800 
          5 stunda dvöl kr. 33.500

          6 stunda dvöl kr. 40.200 
          7 stunda dvöl kr. 46.900 
          8 stunda dvöl kr. 53.600

 

Til þess að öðlast rétt til frekari afsláttar verður horft til tekna foreldra sem grundvallast á framlagðri skattskýrslu og eða launaseðlum síðustu þriggja mánaða.

          -Einstaklingur með tekjur undir kr. 204.500 fái 40% afslátt.
          -Einstaklingur með tekjur undir kr. 245.400 fái 20% afslátt.

          -Fólk í sambúð með tekjur undir kr. 286.300 fái 40 % afslátt.
          -Fólk í sambúð með tekjur undir kr. 343.560 fái 20 % afslátt.

 

Niðurgreiðsla miðuð við 20% afslátt er kr. 8040, á dvalartíma 
          4 stunda dvöl kr. 32.160 
          5 stunda dvöl kr. 40.200 
          6 stunda dvöl kr. 48.240 
          7 stunda dvöl kr. 56.280 
          8 stunda dvöl kr. 64.320

 

Niðurgreiðsla miðuð við 40% afslátt er kr. 9380, á dvalartíma. 
          4 stunda dvöl kr. 37.520
          5 stunda dvöl kr. 46.900
          6 stunda dvöl kr. 56.280
          7 stunda dvöl kr. 65.660
          8 stunda dvöl kr. 75,040

 

Foreldrar sem eiga tvö börn eða fleiri í leikskóla skulu njóta systkinaafsláttar eins og gildir í leikskólum Hafnarfjarðar.

Greitt er samkvæmt reikningi þar sem fram kemur nafn barns, kennitala, heimilisfang og dvalartími ásamt staðfestingu foreldris/forráðamanns.

 

Gildir frá og með 1. mars 2011