Í nýjum lögum um leikskóla er barnið, réttindi þess og velferð í fyrirrúmi. Lögunum er ætlað að skapa stutta og hnitmiðaða rammalöggjöf með samhljóm við löggjöf um önnur skólastig sem skapi skilyrði til að styrkja starf í leikskólum.
Tekið er mið af breytingum á fjölskylduhögum, auknum fjölda íbúa sem eiga sér annað móðurmál en íslensku og menningarlegum fjölbreytileika.