Hafnarfjarðarbær veitir systkinaafslátt sem er 30% vegna annars barns í leikskóla og 60% vegna þriðja barns. Einnig fá foreldrar afslátt ef þeir eru með börn samtímis í dagvistun hjá dagforeldri, gegn því að framvísa hjá leikskólastjóra niðurgreiðslukvittun frá félagsþjónustu.
Systkinaafsláttur reiknast alltaf af gjaldi eldra/elsta barns. Sama regla gildir þó svo börnin dvelji ekki í sama leikskóla.
Það er á ábyrgð foreldra að tilkynna leikskólastjóra að þeir eigi annað barn í öðrum leikskóla til að fá afsláttinn auk þess sem þeir þurfa að tilgreina í hvaða leikskóla barnið dvelur.