Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar
.

Innheimta  leikskólagjalda

 

Hægt er að greiða leikskólagjöld með boðgreiðslum (kreditkorti), beingreiðslum eða fá senda greiðsluseðla. Leikskólagjöld eru innheimt fyrirfram, gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 15. hvers mánaðar. 

 

Gagnkvæmur skriflegur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi er einn mánuður hið minnsta og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.

 

Greitt er fyrir leikskólavistina þó barn sé fjarverandi.

 

Hægt er að sækja um breytingar á dvalarsamningi hjá leikskólastjóra með mánaðarfyrirvara á þar til gerðu eyðublaði og miðast allar breytingar við 1. eða 15. hvers mánaðar eða eftir nánari samkomulagi við leikskólastjóra.

 

Leikskólagjöld eru innheimt í ellefu mánuði þar sem öll börn skulu taka fjögurra vikna sumarleyfi. Til einföldunar eru leikskólagjöld ekki innheimt í júlí, þó svo börn taki sumarleyfi á öðrum tíma.

 

Leikskólar eru lokaðir í fimm virka daga á ári vegna skipulagningar á uppeldis- og fræðslustarfi leikskóla og endurmenntunar starfsfólks. Þessir dagar dragast ekki frá leikskólagjaldi.