Börn einstæðra foreldra og námsmanna eiga rétt á afsláttargjöldum samkvæmt samþykktum bæjaryfirvalda. Til að öðlast rétt til afsláttargjalds þarf að framvísa eftirtöldum viðurkenndum vottorðum/ staðfestingum:
Einstæðir foreldrar framvísa vottorði um fjölskylduhagi frá Manntali, sem sækja má í Þjónustuver á Standgötu 6. Í upphafi leikskólagöngu ber að skila slíku vottorði til leikskólastjóra sem jafnframt er ábyrgðarmaður leikskólagjalda. Síðan þarf að skila samskonar vottorði til leikskólastjóra í upphafi hvers leikskólaárs (september), annars getur leikskólastjóri krafist greiðslu vegna leikskólavistar samkvæmt almennri gjaldskrá.
Foreldrar sem falla undir skilgreiningu um fullt skólanám framvísa vottorði/ staðfestingu í upphafi hverrar annar um að þeir stundi fullt nám. Vottorð skóla þarf að tilgreina að um fullt nám í dagskóla sé að ræða. Fullt nám er skilgreint með sama hætti og Lánasjóður íslenskra námsmanna gerir (það er 22 ECTS einingar á önn).
o Innheimt er lægra gjald frá þeim degi sem skólavottorði er skilað til leikskólastjóra. Aflsláttur er ekki veittur afturvirkt.