Leikskólar í Hafnarfirði
Í Hafnarfirði eru 18 leikskólar. Fimmtán þeirra eru reknir af Hafnarfjarðarbæ en þrír; Bjarmi, Hjalli og Hamravellir, eru reknir samkvæmt þjónustusamningi við bæinn sem felur í sér að þeir sjá um framkvæmd leikskólastarfs og rekstur skólanna.
Hér að neðan eru almennar upplýsingar um hvern leikskóla, svo sem heimilisfang, símanúmer, áherslur í starfi og fleira, einnig er bein tenging inn á heimasíðu hvers leikskóla.
Arnarberg
Haukahrauni 2
Sími: 555 3493, bréfsími: 555 3943
Netfang: arnarberg@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Oddfríður Jónsdóttir.
Megináhersla í daglegu starfi er leikur og hreyfing. Skólinn er forystuskóli í læsishvetjandi umhverfi.
Álfaberg
Breiðvangur 42
Sími: 555 3021, bréfsími: 565 4117
Netfang: alfaberg@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir.
Megináhersla er á leik og störf í gegnum áhuga og styrk barnsins og efla með því trú þess á sjálft sig
og hámarka um leið getu þess. Hugmyndafræði Howards Gardners er höfð að leiðarljósi og að vera meðvitaður
um að allir séu góðir í einhverju en enginn í öllu. Einnig er áhersla á stærðfræði og gagnrýnina
hugsun, skapandi starf og lífsleikni. Síðast en ekki síst er í fyrirrúmi að mynda jákvætt andrúmsloft, skapandi
og lærdómsríkt fyrir börn og fullorðna
Álfasteinn
Háholti 17
Sími: 555 6155, bréfsími: 555 6156
Netfang: alfasteinn@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Inga Líndal Finnbogadóttir.
Megnináherslan í daglegu starfi er á frjálsan leik, einingakubba og heimspekilega hugsun. Skólinn er forystuskóli í einingakubbum til náms og þroska.
Smyrlahrauni 41a
Sími: 512 3330
Netfang: bjargir@gmail.com
Leikskólastjórar: Svava Björk Mörk og Helga Axelsdóttir
Leikskólinn Bjarmi sérhæfir sig í starfi með yngstu börnum leikskóla eða börn á aldrinum 6-18 mánaða. Í leikskólanum eru hugtökin umhyggja og virðing höfð að leiðarljósi í daglegu starfi. Unnið er markvisst með skapandi starf og tónlist.
Hvannavöllum 1
Sími: 424 4640
Netfang: hamravellir@skolar.is
Leikskólastjóri: Ragnheiður Gunnarsdóttir
Áherslur skólans eru samkvæmt viðmiðum heilsustefnunnar; að venja nemendur strax í barnæsku við heibrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Í öndvegi markmiðanna eru góð næring, góð hreyfing og listsköpun. Unnið er að því að leikskólinn öðlist viðurkenningu sem Heilsuleikskóli.
Hjallabraut 55
Símar: 565 3060
Netfang: hjalli@hjalli.is
Leikskólastjóri: Guðrún Jónsdóttur.
Hugmyndafræði og starfshættir skólans eru í samræmi við Hjallastefnuna. Markmið byggjast upp á einfaldleika, einbeitingu, friði og festu í umhverfinu, auk þess að gera báðum kynjum jafn hátt undir höfði.
Hlíðarberg
Hlíðarbergi 1
Sími: 565 0556, bréfsími: 554 7684
Netfang: hlidarberg@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Ólafía Guðmundsdóttir.
Megináherslur í daglegu starfi eru frjáls leikur, hreyfing, sköpun og vellíðan.
Hlíðarendi
Úthlíð 1
Sími: 555 1440, bréfsími: 555 0384
Netfang: hlidarendi@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Oddfríður Steindórsdóttir.
Helstu áhersluþættir eru gæði í samskiptum, hreyfing og umhverfismennt.
Hraunvallaskóli - leikskóli
Drekavöllum 9
Sími: 590 2800, bréfasími: 590 2801
Netfang: hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is
Leikskólastjóri: Sigrún Kristinsdóttir (sigrunk@hraunvallaskoli.is) .
Megináhersla í daglegu starfi er einstaklingsmiðun í námi og samfella skólastiga.
Hvammur
Staðarhvammi 23
Sími: 565 0499, bréfsími: 565 0489
Netfang: hvammur@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Ásta María Björnsdóttir.
Megináherslur í daglegu starfi eru frjáls leikur, samskipti og vinátta. Skólinn er forystuskóli í markvissri málörvun og tvítyngi.
Hörðuvellir
Tjarnarbraut 30
Sími: 555 0721, bréfsími: 555 2489
Netfang: horduvellir@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: María Kristjánsdóttir.
Megináherslur í daglegu starfi eru leikurinn, samskipti og heimspekisamræður.
Kató
Hlíðarbraut 10
Sími: 555 0198, bréfsími: 555 0236
Netfang: kato@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Kristbjörg Helgadóttir í veikindaleyfi Ránar Einarsdóttur.
Lögð er áhersla á að skapa börnum á mismunandi aldri aðstæður til náms á eigin forsendum, með samvinnu barna innbyrðis og í gegn um frjálsan og sjálfsprottinn leik. Skólinn er forystuskóli í samkennslu.
Norðurberg
Norðurvangi 15b
Sími: 555 3484, bréfsími: 555 3518
Netfang: nordurberg@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Anna Borg Harðardóttir.
Í leikskólastarfinu er megináhersla lögð á leikinn, umhverfismennt, útikennslu, hreyfingu, hollustu, hlýlegt umhverfi og jákvæð samskipti.
Smáralundur
Smárabarði 1
Sími: 565 4493, bréfsími: 555 0493
Netfang: smaralundur@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Inga Fríða Tryggvadóttir.
Megináhersla er lögð á leik og leikuppeldi.
Stekkjarás
Ásbraut 4
Símar: 517 5920
Netfang: stekkjaras@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Alda Agnes Sveinsdóttir.
Leikskólinn starfar eftir vinnuaðferðum Reggio Emila. Lögð er áhersla á lýðræði og tjáningu. Við reynum með hjálp barnanna að sjá möguleikana í hversdagsleikanum með því að uppgötva og rannsaka saman. Því eru einkunnarorð skólans: Hugmyndir barnsins, verkefni dagsins.
Tjarnarás
Kríuási 2
Sími: 565 9710, bréfsími 565 9720
Netfang: tjarnaras@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Hjördís Fenger.
Vesturkot
Miklaholti 1
Sími: 565 0220, 565 0271
Netfang: vesturkot@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Særún Þorláksdóttir.
Einkunnarorð leikskólans Vesturkots eru Gleði-Alúð-Skapandi umhverfi. Í leikskólastarfi verður gleðin að vera ríkjandi, gleðin veitir börnunum vellíðan. Alúðin veitir börnunum öryggi og hlýju. Skapandi umhverfi hvetur börnin til að kanna, skoða og upplifa.
Víðivellir
Miðvangi 39
Símar: 555 2004, bréfsími: 555 4835
Netfang: vidivellir@hafnarfjordur.is
Leikskólastjóri: Árdís Grétarsdóttir.
Markmið leikskólans er blöndun fatlaðra og ófatlaðra barna og í daglegu starfi er megináhersla lögð á frjálsan leik og hreyfingu. Skólinn er forystuskóli í hreyfingu og hollum lífsháttum.