PMT-FORELDRAFÆRNI er þjónustueining á fræðslusviði Hafnarfjarðar í samstarfi við félagsþjónustu og heilsugæslu í bænum. Starfsmenn PMT-FORELDRAFÆRNI aðstoða foreldra og skóla við að beita viðeigandi uppeldisaðferðum sem stuðla að góðri aðlögun barna og á því sérstaklega við ef börn sýna hegðunarfrávik. Mikilvægast er að greina hegðunarfrávik snemma á skólagöngunni og bregðast fljótt við. Viðbrögðin felast m.a. í meðferð fyrir foreldra barna með töluverð hegðunarfrávik. Fyrir börn með vægari hegðunarvanda er boðið upp á foreldrafræðslu á námskeiðum og gefið út fræðsluefni.
Frá hausti 2007 eru allir grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar þátttakendur í skólaverkefnishluta PMT, stundum nefnt SMT-skólafærni. Fyrstu skólarnir hófu þátttöku árið 2002 (Víðistaðaskóli, Lækjarskóli). Eftir það hefur þeim smám saman fjölgað sem taka þátt í verkefninu þar til sá síðasti kom inn haustið 2007 (Öldutúnsskóli). Hluti starfsemi PMT er að mennta starfsfólk skóla og þjálfa til að vinna að jákvæðri og góðri hegðun nemenda til að í hverjum skóla starfi faghópur fólks sem vinnur saman að því að gera skólann að betri samverustað þar sem öllum líði sem best.
Margrét Sigmarsdóttir (margret@hafnarfjordur.is), sálfræðingur, stýrir PMT verkefninu. Auk hennar starfa Anna María Frímannsdóttir (annamaria@hafnarfjordur.is), sálfræðingur, Edda Vikar Guðmundsdóttir (eddavikar@hafnarfjordur.is), sálfræðingur og Elísa Ingólfsdóttir (elisa@setbergsskoli.is), námsráðgjafi í Setbergsskóla hjá PMT-foreldrafærni. Starfsfólk PMT hefur aðsetur á Skólaskrifstofunni á 2. hæð og næst í það gegnum þjónustuverið (585 5500).
Sjá nánar vef PTM verkefnisins:
www.pmt-foreldrafaerni.is