LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

 

Skólasöfnin og Bókasafn Hafnarfjarðar

Við hvern grunnskóla í Hafnarfirði er starfrækt bókasafn, gjarnan nefnd skólasöfn,  undir yfirstjórn viðkomandi skólastjóra og í samstarfi við Bókasafn Hafnarfjarðar. Í auknum mæli hafa skólasöfnin ráðið bókasafns- og upplýsingafræðinga til starfa og aukið hlut skólasafnsfræðslu í skólastarfinu þar sem skólasafnakennarar taka líka þátt í kennslunni. Samstarf er milli Bókasafns Hafnarfjarðar og skólanna um skráningu á bókakosti skólasafnanna sem er gerð inn í Gegni, skráningarkerfi fyrir bókasöfn á Íslandi. Kostur þess að skrá skólasöfnin í Gegni er að þá er hægt að nálgast upplýsingar um bókakosti einstakra skóla á veraldarvefnum (www.gegnir.is) sem auðveldar starfsfólki skóla, nemendum og foreldrum að nálgast upplýsingar um bókakost eigin grunnskóla og annarra grunnskóla í bænum. Sérstakur starfsmaður,  Martha Ricart, bókasafns- og upplýsingafræðingur á Bókasafni Hafnarfjarðar, hefur yfirumsjón með flokkun og skráningu á skólasöfnunum og vinnur með bókasafns- og upplýsingafræðingum og öðru starfsfólki skólasafna einstakra grunnskóla.

Frá hausti 2007 eru bókasafns- og upplýsingafræðingar starfandi í sjö af átta grunnskólum í Hafnarfirði:

  • Áslandsskóli:  Guðrún Einarsdóttir
    Hvaleyrarskóli: 
  • Sif Heiða Guðmundsdóttir
  • Hraunvallaskóli:  Alma Sigurðardóttir  
  • Lækjarskóli:  Steinunn Þ. Árnadóttir
  • Setbergsskóli:  Hrafnhildur Steinarsdóttir
  • Víðistaðaskóli:  Steinunn Ósk Guðmundsdóttir
  • Öldutúnsskóli:  Þóra Jónsdóttir

Við árslok 2007 höfðu 93.176 eintök í eigu skóla- og leikskólabókasafna í Hafnarfirði og Skólaskrifstofu verið skráð í Gegni frá upphafi.  Upplýsingarnar eru fengnar af vefsíðu Landskerfis bókasafna, www.landskerfi.is. Árið 2007 sendi Bókasafn Hafnarfjarðar 383 gjafabækur til grunnskóla í Hafnarfirði. Heildarfjöldi skráðra gagna í hverjum grunnskóla 1. janúar 2008 er:

  • Áslandsskóli:  15.792 gögn
  • Hraunvallaskóli: 3.531 gögn
  • Hvaleyrarskóli:  8.978 gögn
  • Lækjarskóli:  12.701 gögn
  • Setbergsskóli: 8.665 gögn
  • Víðistaðaskóli:  14.612 gögn
  • Öldutúnsskóli:  22.069 gögn
  • Skólaskrifstofa: 1.588 gögn

Engidalsskóli er eini grunnskólinn sem ekki hefur hafið skráningu í Gegni.

Við árslok 2006 höfðu 68.836 gögn í eigu skólabókasafna í Hafnarfirði og Skólaskrifstofu verið skráð í Gegni og sést skiptingin hér fyrir neðan.  Heildarfjöldi skráðra gagna í hverjum skóla 1. janúar 2007 er:

  • Áslandsskóli:  12.412 gögn
  • Hraunvallaskóli: 1.350 gögn
  • Hvaleyrarskóli:  7.687 gögn
  • Lækjarskóli:  10.158 gögn
  • Setbergsskóli: 2.607 gögn
  • Víðistaðaskóli:  13.159 gögn
  • Öldutúnsskóli:  19.875 gögn
  • Skólaskrifstofa: 1.588 gögn

Þjónusta Bókasafns Hafnarfjarðar við grunnskólana í dag er:

  1. Grunnskráning alls bókakosts skólasafna grunnskólanna og kennslumiðstöðvar og myndbandasafns Skólaskrifstofu í Gegni fer fram á Bókasafni Hafnarfjarðar.
  2. Símaþjónusta og annar aðgangur bókasafns- og upplýsingafræðinga skólanna að starfsmönnum Bókasafns Hafnarfjarðar eftir þörfum.
  3. Stendur fyrir reglulegum samráðsfundum bókasafns- og upplýsingafræðinga skólanna og Bókasafns Hafnarfjarðar.
  4. Bókasafns- og upplýsingafræðingur í 75% starfi á Bókasafni Hafnarfjarðar í samstarfi við Skólaskrifstofuna.
  5. Bókasafn Hafnarfjarðar tekur á móti bekkjum og hópum sem vilja heimsækja safnið og fá kynningu á safninu.
  6. Bókasafn Hafnarfjarðar gerir kynningarbæklinga um lesefni fyrir börn í tengslum við ákveðin verkefni eða atburði, t.d. Stóru upplestrarkeppnina.

Nemendum grunnskólanna stendur til boða frír aðgangur að bókum og leiga á fræðslumyndefni (afþreyingarmyndir lánast gegn vægu gjaldi) allan grunnskólatímann og fram til 18 ára aldurs. Þá er á Bókasafni Hafnarfjarðar lestrarsalur fyrir nemendur, eldri en 16 ára, framhaldsskólanema og aðra bæjarbúa.

Á síðustu árum hafa skólasöfnin verið skráð inn í Gegni sem hér segir:

Árið 2006 var á Bókasafni Hafnarfjarðar skráð 2591 eintak frá sjö grunnskólum auk Skólaskrifstofu og er skiptingin sem hér segir:

  • Áslandsskóli: 44 eintök
  • Hraunvallaskóli: 755 eintök
  • Hvaleyrarskóli: 23 eintök
  • Lækjarskóli: 171 eintak
  • Setbergsskóli: 807 eintök
  • Víðistaðaskóli: 254 eintök
  • Öldutúnsskóli: 385 eintök
  • Skólaskrifstofa: 152 eintök

Árið 2005 voru skráð 10.252 gögn fyrir grunnskólasöfnin og Skólaskrifstofu.  Það skal tekið fram að tölur um fjölda skráninga ná aðeins yfir það sem bókasafns- og upplýsingafræðingar á Bókasafni Hafnarfjarðar skrá fyrir skólana.  Við þetta bætist því það sem skráð er á skólasöfnunum sjálfum í hverjum skóla.  Skipting þess sem var skráð á Bókasafni Hafnarfjarðar er eftirfarandi:

  • Áslandsskóli: 209 gögn
  • Hvaleyrarskóli: 302 gögn
  • Víðistaðaskóli: 8615 gögn
  • Skólaskrifstofa: 1126 gögn.

Árið 2004 voru skráð 8253 eintök skráð sem skiptust þannig milli skóla: 

  • Áslandsskóli:  1072 eintök 
  • Hvaleyrarskóli:  554 eintök 
  • Víðistaðaskóli:  2095 eintök 
  • Öldutúnsskóli:  4209 eintök 
  • Skólaskrifstofa – myndbandasafn:  323 eintök

Árið 2003 voru 10.441 eintak skráð sem skiptust þannig milli skóla: 

  • Hvaleyrarskóli:  5199 eintök 
  • Öldutúnsskóli:  5242 eintök