Fyrir grunnskólanemendur í Hafnarfirði er boðið upp á nám í norsku og sænsku í stað dönsku fyrir þá sem eiga erindi í slíkt nám. Í aðalnámskrá grunnskóla (1999), erlend tungumál, segir: Kennsla í norsku eða sænsku stendur til boða nemendum sem hafa sérstök tengsl við Noreg eða Svíþjóð og kemur kennslan þá í staðinn fyrir dönskukennslu og hefst á sama tíma og dönskukennsla hefst í grunnskóla.
Nemendur sem geta valið norsku eða sænsku, hafa þá sérstöðu að þeir vita deili á þessum samfélögum, þekkja tjáskiptareglur þeirra og siði. Þeir hafa því málfarslegar og menningarlegar rætur bæði á Íslandi og í Noregi eða Svíþjóð. Nemandi þarf því að hafa eftirtalda undirstöðukunnáttu til að geta stundað nám í norsku eða sænsku ella nýtist ekki kennslan sem í boði er:
Norsku- og sænskukennslan er skipulögð af kennurum Námsflokka Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar og fer að öllu jöfnu fram síðdegis virka daga í húsnæði Námsflokkanna í Menntasetrinu við Lækinn (áður Lækjarskóli) við Skólabraut. Nemendum er safnað saman úr grunnskólum bæjarins og fá kennslu einu sinni í viku, tvær kennslustundir í senn. Tímasetningar kennslustunda eru ákveðnar í samráði nemenda og kennara í samhengi við stundatöflur viðkomandi nemenda.
Nemendur taka samræmt próf í norsku og sænsku í lok 9. og/eða 10. bekkjar. Um það má sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Námsmatsstofnunar.
Kennslan veturinn 2009-2010:
Norska er kennd á þriðjudögum: 7. og 8. bekkur kl. 14.30 - 16.00 og 9. og 10. bekkur kl. 16.00-17.0.
Kennslan fer fram í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við Lækinn i stofu 303.
Kennari í norsku er Arnhild Mölnvik, sími 8990405, netfang: arnhild@laugalaekjarskoli.is.
Sænska er kennd á miðvikudögum kl. 16-17.20 fyrir 7. og 8. bekk og á fimmtudögum kl. 16.30-17.50 fyrir 9. og 10. bekk.
Kennslan fer fram í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við Lækinn i stofu 303.
Kennari í sænsku er Elisabet A. Brekkan, s. 691 8522, netfang: brekkan@simnet.is.
Allar nánari upplýsingar eru veittar af viðkomandi kennara.