Grunnskólar Hafnarfjarðar 2011-2012
Í Hafnarfirði eru starfræktir sjögrunnskólar á vegum Hafnarfjarðarbæjar og einn einkarekinn sem er Barnaskóli Hjallastefnunnar. Lögð er áhersla á að kennsla í skólunum fylgi aðalnámskrá grunnskóla á hverjum tíma (nú Aðalnámskrá grunnskóla 2011). Þá er í gildi sérstök skólastefna fyrir Hafnarfjörð þar sem koma fram áhersluatriði bæjaryfirvalda um skólastarf í bænum.
Í öllum grunnskólum eru auk almennrar kennslu skólasöfn, tölvustofur, námsráðgjafar, sérkennsla og aðgangur að sálfræðingum í gegnum nemendaverndarráð og stjórnendur skólanna. Þá er verið að byggja upp sérstakan stuðning við skóla og foreldra við að fást við hegðunarvanda nemenda, svonefnd
PMT-FORELDRAFÆRNI, eftir ákveðnu skipulagi sem verið er að þróa við skólana undir yfirsjón Margrétar Sigmarsdóttur, margret@hafnarfjordur.is , sálfræðings. Sjá nánar síðuna um Uppeldisráðgjöf PMT.
Í grunnskólum Hafnarfjarðar er boðið upp á margvíslega og fjölbreytta sérfræðiþjónustu í samræmi við lög. Í skólunum starfa námsráðgjafar og sálfræðingar auk annarra faglærðra og ófaglærða starfsmanna sem veita nemendum í grunnskólunum þjónustu. Margvísleg sérkennsla fer sömuleiðis fram í grunnskólum Hafnarfjarðar. Sérkennslan er á ábyrgð hvers grunnskóla undir stjórn skólastjóra, s.s. skipulag og ráðning starfsmanna. Skólarnir fá sérstakar útthlutanir til sérkennslu frá bæjaryfirvöldum. Yfirumsjón með sérkennslu grunnskóla fyrir hönd Skólaskrifstofunnar hefur Helgi Gíslason, sérkennari sem gegnir starfi sérkennsluráðgjafa á Skólaskrifstofunni. Netfang hans er helgigisla@hafnarfjordur.is. Sjá nánar um sérfræðiþjónustu við grunnskóla.
Þá rekur Hafnarfjarðarbær sérdeildir sameiginlega fyrir alla grunnskóla bæjarins. Í Lækjarskóla er móttökudeild fyrir nýbúa þar til þeir geta stundað nám í hefðbundnum bekkjardeildum. Í Lækjarskóla er sérdeild fyrir börn á aldrinum 6-15 ára með mikil þroskafrávik. Sérdeild fyrir unglinga er starfrækt í Öldutúnsskóla. Þá er nám í boði fyrir nemendur í 9. og 10. bekkjum sem hentar verklegt nám sérstaklega og er sú deild rekin í Menntasetrinu við Lækinn (gamla Lækjarskóla) svonefnd
fjölgreinadeild. Sjá nánar um sérfræðiþjónustu við grunnskóla.
Allir grunnskólar í Hafnarfirði eru einsetnir. Í hverjum grunnskóla er leitast við að hafa góðar aðstæður til náms, góða sérfræðiþjónustu og hæft starfsfólk. Í öllum skólum er skólasafn þar sem nemendur hafa ókeypis aðgang að bókum og öðru fræðsluefni sér að kostnaðarlausu. Íþrótta- og sundkennsla er við alla skólana og fer hún fram í sundlaugum og íþróttahúsum bæjarins. Nemendum er ekið í sund og íþróttir ef sundlaugar og íþróttahús eru ekki í göngufæri. Í öllum skólunum hefur verið byggð upp mötuneytisaðstaða fyrir nemendur til að snæða í hádeginu eigið nesti eða kaupa mat sem skólar bjóða upp á og er hann ýmist aðkeyptur eða eldaður á staðnum.
Fyrir yngstu nemendurna, þ.e. nemendur í 1.-4. bekk, er að auki boðið upp á viðveru í skólanum eftir að kennsludegi lýkur (til kl. 17) og er nefnd heilsdagsskóli og er rekið af ÍTH. Greitt er fyrir dvöl í heilsdagsskólanum eftir gjaldskrá sem Hafnarfjarðarbær setur.
Allir nemendur, sem eiga lögheimili í Hafnarfirði, fá sjálfkrafa aðgang að grunnskóla í sínu lögheimilishverfi. Óski nemendur eftir að sækja annan grunnskóla í bænum, í öðru sveitarfélagi eða einkaskóla annars staðar skal sækja um slíkt í íbúagátt Hafnarfjarðar.
Hér neðar eru upplýsingar um alla grunnskólana í Hafnarfirði, tengingar í heimasíður þeirra (smellið á nöfn skólanna til að fara á heimasíður þeirra), símar í skólum, sérdeildir, heilsdagsskóla, félagsmiðstöð og netföng stjórnenda.
Kríuási 1 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 4600. Bréfasími: 585 4610
Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is
Nemendafjöldi: um 500 í 1.-10. bekk
Skólastjóri: Leifur S. Garðarsson (leifur@aslandsskoli.is).
Aðstoðarskólastjóri: Unnur Elfa Guðmundsdóttir (ueg@aslandsskoli.is).
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8-16 virka daga.
Drekavellir 9 221 Hafnarfjörður
Skrifstofa er opin kl. 9-15.
Hraunvallaskóli er jafnframt leikskóli.
Akurholti 1 220 Hafnarfjörður
Lækjarskóli (1877/1908/1926/1961/nýbygging 2003)
Sólvangsvegur 4 220 Hafnarfjörður
Sími: 555 0585. Bréfasími: 565 5185
Netfang:
skoli@laekjarskoli.is
Nemendafjöldi: um 450 í 1.-10. bekk að sérdeildum meðtöldum.
Skólastjóri: Arna Björný Arnardóttir (arna
@laekjarskoli.is) skólaárið 2011-2012 í leyfi Haraldar Haraldssonar.
Skrifstofan er opin kl. 7.50-15.30 mánudaga til fimmtudaga og kl. 7.50-15 á föstudögum.
Við Lækjarskóla eru eftirfarandi sérdeildir:
-Fjölnám í Lækjarskóla
Fjölgreinadeild, ætluð nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla, sem hentar sérstaklega verklegt nám. Forstöðumaður er Helga Kristín Gilsdóttir skólaárið 2011-212 í leyfi Kristín María Indriðadóttir. Deildin heldur úti eigin heimasíðu og er hægt að komast á hana með því að smella
hér. Í tengslum við fjölgreinadeildina er starfrækt fjölgreinabraut. Fjölgreinabrautin er framhaldsskólanám fyrir nemendur áaldrinum 16-18 ára, í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneyti, og er tveggja ára nám ætlað nemendum sem lokið hafa grunnskólagöngu í fjölgreinadeild og aðra nemendum. Brautin er starfrækt í samstarfi við Flensborgarskóla og Iðnskólann í Hafnarfirði.
-
Móttökudeild fyrir nýbúa sem er ætluð nemendum sem eru nýfluðtir til Íslands og eiga ekki íslensku sem móðurmál og þurfa góða undirstöðu í íslensku. Frá hausti 2007 fara þó nemendur sem fara í 1.-3. bekk beint í sinn hverfisskóla. Forstöðumaður nýbúadeildar er Kristrún Sigurjónsdóttir (
kiddy@laekjarskoli.is).
-
Sérdeild fyrir börn með þroskahamlanir í 1.- 8. bekk. Forstöðumaður er Svala Níelsdóttir (
svala@laekjarskoli.is).
Hlíðarbergi 221 Hafnarfjörður
Skrifstofan er opin kl. 8-16
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 7.30-15 og á föstudögum kl. 7.30-16.
Hjallabraut 55 220 Hafnarfjörður
Sími: 555 7610.
Nemendafjöldi er um 90 nemendur í 1.-4. bekk.
Skólastjóri: Sara Dögg Jónsdóttir