Forystuskóli er hugtak sem innleitt er og kynnt í skólastefnu Hafnarfjarðar (2005) en þar segir:
Aðstæður í skólaumhverfi Hafnarfjarðar verði þannig að einstaka skólum gefist kostur á að sækja um að sinna faglegri forystu, gerast forystuskóli, á ákveðnum sviðum og þeir verði styrktir sérstaklega til þess. Sérhver forystuskóli móti sína sérstöðu og sé reiðubúinn til að gegna ákveðnu ráðgjafarhlutverki og hafi frumkvæði að því að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra skóla. Símenntun starfsmanna forystuskóla taki mið af sérstöðu þeirra. (Skólastefna Hafnarfjarðar 2005, liður 1.7 inngangur). Sjá Skólastefnu Hafnarfjarðar.
Leik-, grunn- og tónlistarskólar í Hafnarfirði geta orðið forystuskólar á vegum Hafnarfjarðarbæjar hafi þeir forsendur til að geta verið í forsvari faglegra mála í skólastarfi. Þannig er gert ráð fyrir að skólar sæki um að gerast forystuskólar til fimm ára í senn og fái til þess formlegt leyfi í samræmi við starfsreglur. Sjá nánar starfsreglur fyrir forystuskóla.
Það er fræðsluráð Hafnarfjarðar sem ákveður hvaða skóli gerist forystuskóli og fær hann það verkefni til fimm ára með sérstökum fjárveitingum. Skólar sem gerast forystuskólar gangast undir strangt vinnuferli. Þeir skila árlega starfsskýrslum og meta reglulega framgang verkefnisins. Þá hafa forystuskólar skyldur í því að miðla af reynslu sinni til annarra skóla í Hafnarfirði á því sviði sem forystuskóli byggir upp.
Til að gerast forystuskóli þarf að sækja um leyfi og fá staðfestingu fræðsluráðs á sérstöku umsóknarformi. Hér er hægt að nálgast umsóknarformið. Umsókn skal bæði skila inn rafrænt og á pappír. Sjá nánar umsóknareyðublaðið.
Fyrstu foryskólarnir voru samþykktir í fræðsluráði í júní 2006.
Forystuskólar í Hafnarfirði eru sem hér segir:
2008-2013:
2007-2012:
2006-2011: