LeikskólarLeikskólarMiðstöð símenntunarTónlistarskóli HafnarfjarðarLeikskólarLeikskólar Íbúagáttin

Foreldraráð Hafnarfjarðar

Foreldraráð Hafnarfjarðar er samráðsvettvangur foreldra grunnskólabarna í Hafnarfirði. Það er myndað af fulltrúum foreldra úr öllum grunnskólum bæjarins. Foreldraráðið tilnefnir jafnframt fulltrúa í svæðasamtök í landsamtökum foreldra, Heimili og skóli.

Foreldraráð Hafnarfjarðar tilnefnir fulltrúa foreldra í skólanefnd sveitarfélaga samkvæmt grunnskólalögum, í Hafnarfirði fræðsluráð. Þannig er Sveindís Jóhannsdóttir (sveindis@talnet.is) fulltrúi ráðsins í fræðsluráði Hafnarfjarðar frá hausti 2010 og Íris Helga Baldursdóttir (irishelga@gmail.com) er varamaður hennar. Áheyrnarfulltrúi foreldra í fræðsluráði hefur áheyrnar- og tillögurétt í ráðinu en ekki atkvæðisrétt.

Foreldraráð Hafnarfjarðar veitir reglulega viðurkenningu sína til aðila í skólaumhverfinu í Hafnarfirði sem þykja hafa stuðlað að auknu foreldrasamstarfi og vinna að góðum og bættum tengslum skóla og heimilis í bænum.

Í undirbúningi er að Foreldraráðið setji upp eigin vef í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og verður tengt í hann frá þessari vefsíðu þegar sá vefur verður tilbúinn.

Myndin er frá afhendingu viðurkenningar foreldraráðs Hafnarfjarðar árið 2008. F.v. Árni M. Mathiesen, Helga Friðfinnsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir og Helena Mjöll Jóhannsdóttir en Helena og Árni voru þá fulltrúar og talsmenn Foreldraráðs Hafnarfjarðar.