Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar

Reglur um niðurgreiðslur gjalda fyrir dvöl barna í heimahúsum

Foreldrar allra barna sem dvelja hjá dagforeldrum og eiga lögheimili í Hafnarfirði eiga rétt á niðurgreiðslum dvalargjalds, frá lokum hámarksréttar til fæðingarorlofs fram til grunnskólaaldurs. Hámarksréttur fæðingarorlofs er 9 mánuðir fyrir hjón og sambúðarfólk og 6 mánuðir fyrir einstætt foreldri.

Um er að ræða tvo niðurgreiðsluflokka.
Flokkur a) almennt gjald er 3.705 krónur á mánaðarklukkustundina. ( klst.fjöldi sem barnið dvelur á dag) Flokkur a) er vegna hjóna og sambúðarfólks.
Flokkur b) sérstök niðurgreiðsla er 4.833 krónur á mánaðarklukkustundina. Flokkur b) er vegna barns ef foreldri er einstætt eða annað eða bæði í fullu námi.

Foreldrar sem geta ekki vegna sérstakra ástæðna nýtt sér þjónustu dagforeldra og óska eftir að barn sé í gæslu hjá öðrum en dagforeldri með starfsleyfi, geta sótt um niðurgreiðslu á sérstöku eyðublaði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Skilyrði niðurgreiðslna hjá öðrum en dagforeldrum er:
- Að vinnutími dagforeldra henti ekki foreldrum barnanna
- Að ekkert laust pláss sé hjá dagforeldri í Hafnarfirði
- Að um sé að ræða alvarleg veikindi i fjölskyldu

Veitt er 100% viðbótar niðurgreiðsla ef um systkini er að ræða í daggæslu.

Dæmi um niðurgreiðslur dvalargjalds.
Fyrir 8 tíma gæslu á dag í heilan mánuð er greitt niður 29.640 krónur vegna barns í flokki a. en 38.664 krónur fyrir barn í flokki b.

Umsóknareyðublöð liggja í afgreiðslu Félagsþjónustunnar Strandgötu 33, hjá daggæslufulltrúa, hjá dagmæðrum og í Þjónustuveri Strandgötu 6.


Félagsþjónustan í Hafnarfirði
Strandgata 33