Leiðarljós - hlutverk - meginmarkmið - þjónusta.

Leiðarljós:

Bókasafn Hafnarfjarðar standi jafnfætis bestu almenningsbókasöfnum heimsins hvað varðar búnað og þjónustu og efli menningu í alþjóðlegu umhverfi. Bókasafn Hafnarfjarðar á að vera menningar- og upplýsingamiðstöð, kyrrðarreitur, athvarf, unaðsreitur, samkomustaður, varðveislustaður, fyrir grúskara, lestrarhvetjandi, með vinnuaðstöðu fyrir námsmenn og nafli samfélagsins.

Hlutverk:

Bókasafn Hafnarfjarðar er upplýsinga- og menningarstofnun sem starfar samkvæmt gildandi lögum um almenningsbókasöfn. Safnið starfar í samræmi við gildandi stefnu og samþykktir Hafnarfjarðarbæjar. Út frá þeim hafa verið sett fram eftirfarandi markmið:

Meginmarkmið:

  • Bókasafn Hafnarfjarðar sé aðgengilegt öllum bæjarbúum, lifandi í hugskoti íbúanna sem fjölbreytt menningar- og upplýsingastofnun og hluti af daglegu lífi bæjarbúa.
  • Safnkostur og þjónusta uppfylli óskir og þarfir viðskiptavina og þeir hafi góðan aðgang að fjölbreyttum safnkosti til aukinnar þekkingar, þroska og afþreyingar.
  • Starfsemi Bókasafns Hafnarfjarðar einkennist af víðsýni og virðingu gagnvart fólki af ólíkum uppruna og stöðu.
  • Að auka skilning á mikilvægi þess að lesa fyrir börn frá frumbernsku til að létta þeim framtíðarnám síðar meir á ævinni og að heimsóknir í Bókasafn Hafnarfjarðar séu hluti af menningaruppeldi barna og unglinga.
  • Vekji og efli lestrarlöngun allra aldurshópa og standi vörð um íslenska tungu og styðji við símenntun.
  • Bæti tölvulæsi og auðveldi aðgang að upplýsingum á Internetinu.
  • Fylgist með og tileinki sér nýjungar á sviði upplýsingaþjónustu og bókasafnsþjónustu almennt. Sé í framvarðasveit almenningsbókasafna með jákvæðri, markvissri og öflugri þjónustu.
  • Fylgist með og tileinki sér tækninýjungar sem draga úr lestrarörðugleikum

Þjónusta:
 

Starfsfólk Bókasafns Hafnarfjarðar leitast við að veita góða og faglega þjónustu og bjóða almenningi fjölbreyttan safnkost og hagnýtar upplýsingar og stuðla þannig að símenntun og uppbyggilegri afþreyingu.

  • Veita hafnfirskum framhaldsskólanemum aðstöðu til náms.
  • Viðhalda tónlistardeild bókasafnsins, Friðriksdeild, og halda áfram að reka stærstu tónlistardeild á Íslandi fyrir almenning. 
  • Veita grunn- og leikskólum Hafnarfjarðar þjónustu og taka á móti grunn- og leikskólahópum.
  • Sinna heimaþjónustu eins og kostur er.
  • Efla Milli-Reykjasamstarfið sem er samstarf fjögurra almenningsbókasafna í nágrannasveitarfélögunum Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. (Mottóið fjórir fyrir einn) 

Bókasafn Hafnarfjarðar starfar í samræmi við lög um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 og  yfirlýsingu Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um almenningsbókasöfn frá 1994.

Markmið Bókasafns Hafnarfjarðar eru frá febrúar 2008 . 


 Leita í safnkosti   Upplýsingaveitur   Útgefið efni

gegnir2Gegnir.is
Gagnagrunnur íslenskra bókasafna

Hvar.is - Landsaðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum.

Vefbókasafnið
Safn valinna vefsíðna. 

Google Scholar

Google Scholar leitar meðal annars í tímaritagreinum. Nánar um Google Scholar.

Flýtilyklar

Markmið Bókasafns Hafnarfjarðar

Starfsáætlun 2010

Ársskýrsla 2009   
  (pdf skjal 3,6 MB) 



 

Hafnarfjarðarbær | Bókasafn Hafnarfjarðar | bokasafn@hafnarfjordur.is  |   Bókasafnið á Facebook 
Strandgötu 1 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5690 | Bréfsími 585 5689