Í hverju skólaumdæmi er skylt að veita sérfræðiþjónustu þeim nemendum sem þurfa stuðning (sálfræðilegan, námslegan) og er Hafnarfjörður eitt slíkra umdæma. Sérfræðiþjónustunni er ætlað að stuðla að því að sálfræðileg og kennslufræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi. Sérfræðiþjónustan starfar eftirlögum og reglugerðum mennta- og menningarmálaráðuneytisins (reglugerðir nr. 584 og 585 frá árinu 2010). Þjónustan getur verið mismunandi og ræðst af aðstæðum nemenda og skóla. Til hægðarauka er sérfræðiþjónustunni í Hafnarfirði hér skipt upp í nokkra þætti og kynnt örlítið nánar. Frekari upplýsingar um sérfræðiþjónustuna fást hjá hverjum skóla.
Námsráðgjöf
Í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar eru stöður námsráðgjafa. Til þeirra geta kennarar, nemendur og foreldrar leitað eftir ráðum og úrlausnum vegna náms og starfsvals, forvarna og fyrirbyggjandi starfs auk persónulegra málefna einstakra nemenda.
Eftirtaldir aðilar starfa við námsráðgjöf í grunnskólum Hafnarfjarðar:
Sálfræðiþjónusta
Skólasálfræðingur starfar í hverjum grunnskóla Hafnarfjarðar og hefur aðsetur þar. Sálfræðiaðstoð stendur nemendum til boða og þar með foreldum og kennurum þeirra. Aðstoðin getur verið af ýmsu tagi, svo sem greiningar vegna hegðunar- og námserfiðleika (ofvirkni, lestrarvandi o.fl.) og ráðgjöf. Beiðni til sálfræðings er gerð í skóla í samvinnu við foreldra/forráðamenn og er háð samþykki þeirra.
Heimsóknir nemenda til sálfræðings eru háðar leyfi foreldra. Hver sálfræðingur hefur ákveðna viðveru í hverjum skóla og fást þær upplýsingar hjá hverjum skóla fyrir sig. Yfirsálfræðingur grunnskóla er Eiríkur Þorvarðarson (eirikurth@hafnarfjordur.is) á Skólaskrifstofunni. Eftirtaldir sálfræðingar starfa við grunnskóla Hafnarfjarðar:
Talmeinaþjónusta
Í grunnskólum Hafnarfjarðar er þjónusta við nemendur sem eiga við heyrnar- og talvandamál að stríða, í daglegu tali nefnd talmeinaþjónusa. Talmeinaþjónustan er aðkeypt frá nokkrum aðilum, m.a. Mál og tal talmeinaþjónustu eða Talstofunni og fer þjónustan fram fyrir milligöngu grunnskólanna sjálfra og Skólaskrifstofunnar. Í meginatriðum skiptist þjónustan eftir skólum milli eftirtaldra aðila:
Sérkennsla
Við alla grunnskóla Hafnarfjarðar er nemendum veittur viðbótarstuðningur í námi, ef hefðbundin bekkjarkennsla dugir ekki til og aðstæður leyfa, sem einu nafni er nefnd sérkennsla. Slíkur stuðningur getur verið margs konar, verið mismunandi eftir árgöngum og staðið mislengi yfir hjá hverjum nemanda eða allt frá 1-2 mánuðum til allrar grunnskólagöngunnar. Umsýsluaðili á Skólaskrifstofu vegna sérkennslu og tengiliður við foreldra barna í sérkennslu í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason, sérkennsluráðgjafi grunnskóla (helgigisla@hafnarfjordur.is). Deildarstjórar/fagstjórar í sérkennslu í grunnskólunum eru:
Sérdeildir
Í sumum tilfellum duga ekki hefðbundin sérkennsluúrræði í skólum og þá er boðið upp á sérstök úrræði eða sérdeildir hjá Hafnarfjarðarbæ. Sérdeildirnar vinna eftir starfsskrá og viðhafa ákveðnar inntökureglur með sérstakri inntökunefnd sem í sitja viðkomandi skólastjóri, forstöðumaður deildar og ráðgjafar- og þróunarfulltrúi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Meginreglan er að nemendur eru teknir inn í sérdeild einu sinni á ári, þ.e. fyrir hvert skólaár og umsókn um dvöl í sérdeild sé skilað inn tímanlega að vori (fyrir 1. apríl). Eyðublað fyrir inngöngu í sérdeild er hægt að nálgast í hverjum grunnskóla eða á Skólaskrifstofunni. Umsýsluaðili á Skólaskrifstofu vegna sérkennslu og tengiliður við foreldra barna í sérkennslu/sérdeildum í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason, sérkennsluráðgjafi grunnskóla (helgigisla@hafnarfjordur.is).
Sérdeildir í Hafnarfirði eru:
Nemendum í Hafnarfirði sem stunda nám í sérdeild utan þeirra skólahverfis er ekið í og úr skóla. Sömuleiðis getur verið að nemendum í Hafnarfirði sé útvegað pláss í sérskóla utan bæjarfélagsins ef ekki er mögulegt að mæta þörfum nemanda í sérdeildum Hafnarfjarðarbæjar. Óskir um slíkt eru metnar sjálfstætt á vegum Skólaskrifstofunnar og í samræmi við þarfir og það fjármagn sem er til úthlutunar til sérfræðiþjónustu á hverjum tíma.
Vísir að sérdeild fyrir einhverfa nemendur er starfrækt í Setbergsskóla.
Móttökudeild nýbúa
Hafnarfjarðarbær rekur móttökudeild fyrir nýbúa sem ekki getað stundað nám í bekk sökum ónógrar íslenskukunnáttu auk þess sem deildin fylgir eftir þeim nemendum sem útskrifast úr deildinni og fara í almennar bekkjardeildir. Deildin er starfrækt í Lækjarskóla. Frá hausti 2007 fara nýbúanemendur í 1.-3. bekk grunnskóla beint í sinn hverfisskóla. Deildarstjóri er Kristrún Sigurjónsdóttir (kiddy@laekjarskoli.is). Umsýsluaðili á Skólaskrifstofu vegna málefna nýbúafræðslu og tengiliður við foreldra tvítyndra nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason, sérkennsluráðgjafi grunnskóla (helgigisla@hafnarfjordur.is).
Allir starfsmenn sérfræðiþjónustu lúta verkstjórn skólastjóra viðkomandi grunnskóla.
Yfirumsjón sérfræðiþjónustu
Yfirumsjón sérfræðiþjónustu er á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Helstu verkefni þar eru: Úthlutun sérkennslumagns, eftirlit, þróun og eftirfylgni sérfræðiþjónustu, umsjón og ráðgjöf með sérdeildum, nýbúadeild og fjölgreinadeild, skipulagning sálfræði- og talmeinaþjónustu, samskipti við félagsþjónustu og heilsugæslu, ráðgjöf til foreldra og úrlausn erinda til sálfræðiþjónustunnar.