Bjartir dagar dagskrá

Lista- og menningarhátíðin Bjartir dagar verður haldin í tíunda skiptið dagana 31. maí - 3. júní. Þá mun Hafnarfjarðarbær iða af lífi og list á þessum bjartasta tíma ársins.

Hinn árlegi viðburður hátíðarinnar Gakktu í bæinn verður fimmtudaginn 31. maí en þá bjóða listamenn heim, menningarstofnanir bjóða uppá dagskrá og verslanir og veitingahús í miðbænum eru opnar til kl. 22 og bjóða uppá viðburði eða tilboð.

Margt annað verður í boði á Björtum dögum og má nefna söngleik, leikskólalist, fjölbreytta tónleika, grínkvöld, sögu-slamm, fuglaskoðun, álfagönguferðir, bíótónleika, sögusýningar, myndlistarsýningar, styttugöngu, ratleik, töfrabrögð, tískusýningu, kórsöng, rithöfundakynningu og margt fleira.

(PDF skjal) Hér er hægt að sjá dagskrána