Fyrir hverja er safnið?
Bókasafn Hafnarfjarðar er almenningsbókasafn sem þjónar fyrst og fremst íbúum, fyrirtækjum og stofnunum í Hafnarfirði.
Eitt ársgjald = Fimm bókasöfn
Bókasafn Hafnarfjarðar hefur hafið samstarf við bókasöfnin í Garðabæ, Kópavogi og á Álftanesi. Samstarfið er á þá leið að hafi lánþegi gilt skírteini í einu safnanna getur hann nýtt sér þjónustu þeirra allra. Ársgjald ákvarðast af gjaldskrá safnsins í því sveitarfélagi þar sem lánþegi á lögheimili. Útlánagjöld, sektir og önnur gjöld miðast við það safn sem notað er hverju sinni. Söfnin eru samtals 5, þar sem Bókasafn Kópavogs hefur útibú í Lindasafni.
Útlánareglur:
Aðgengi fatlaðra
Gott aðgengi er að bókasafninu fyrir fólk í hjólastólum.
Lyfta er miðsvæðis í húsinu, auk þess sem nóg pláss er milli hillustæða. Starfsfólk er til þjónustu reiðubúið að aðstoða þá sem eiga erfitt með að ná upp í efri hillur. Rúmgott salerni fyrir fatlaða er á jarðhæð.
Bókasafnið er opið:
mán. - mið. 10 - 19
fim. 9 - 19
fös. 10 - 19
lau. 11 - 15 (okt. - maí)
Gegnir
Bókasafn Hafnarfjarðar er skráð í bókasafnskerfið Gegni, ásamt fleiri söfnum á Íslandi. Nánari upplýsingar um Gegni má finna á vef Landskerfis.
Ársgjald er 1.300 kr. en skírteini eru ókeypis fyrir börn, eldri borgara og öryrkja.
Leita í safnkosti |
Upplýsingaveitur |
Útgefið efni |
||
|
|
|
|