Þráðlaust net
Viðskiptavinir geta tengst Internetinu gjaldfrjálst með fartölvum sínum. Tengipunktar eru á lesstofu (3. hæð) og í fjölnotasal (kjallara). Þráðlausa netið tengist ekki prentara.
Netver
Á 2. hæð eru tölvur með netaðgangi. Tímakóðar eru seldir í afgreiðslu á 2. hæð.
- 125 kr. hver hálftími.
- Hægt að kaupa lengri tíma í einu (t.d. 3 klst.) og geyma lykilorðið í allt að mánuð.
- Notendur þurfa að muna að skrá sig út úr tölvunum ef ætlunin er að geyma afgangs tíma.
- Ekki er hægt að vista gögn í tölvunum.
- Útprentun kostar 25 kr. hvert blað.
Uppflettitölvur
Í bókasafninu eru 3 uppflettitölvur. Ekkert gjald er fyrir notkun þeirra, en þær eru aðeins ætlaðar fyrir leitir í Gegni.
Barnadeild
Á barnadeildinni eru 3 leikjatölvur. Ekkert gjald er fyrir notkun þeirra, og þær eru ekki nettengdar.
Útprentun
Útprentun er möguleg í netveri á 2. hæð. Hvert blað kostar 25 kr.
Diskar - diskettur - minnislyklar
Vegna öryggisráðstafana eru tölvur bókasafnsins ekki búnar diskadrifum.
Notendur geta notað vefpóst (t.d. Gmail) til að flytja gögn í tölvurnar og úr þeim.
Einnig er hægt að nota USB-minnislykla í tölvunum.
Barnatölvur
Tölvur í barnadeild eru búnar ýmsum leikjum fyrir börn og unglinga. Ekkert gjald er tekið fyrir notkun. Hámarkstími er 1 klukkustund á dag.
Bókasafnið er opið:
10:00-18:00 alla virka daga
lau. 11:00 - 15:00 (okt. - apr.)
Sími: 585 5690
Bókasafn Álftaness
Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Kópavogs
Lindasafn